Bandaríkin - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bandaríki Ameríku
United States of America (USA)
Fáni
Skjaldarmerki
Kjörorð
In God We Trust
enska
Vér treystum á Guð
Þjóðsöngur
The Star-Spangled Banner
Höfuðborg
Washington, D.C.
Opinbert tungumál
enska
Stjórnarfar
Sambandslýðveldi
forsetaræði
Forseti
Donald Trump
Varaforseti
JD Vance
Þingforseti fulltrúadeildar
Mike Johnson
Forseti
Hæstaréttar
John G. Roberts
Sjálfstæði
frá
Bretlandi
Yfirlýst
4. júlí
1776
Viðurkennt
3. september
1783
Flatarmál
Samtals
Vatn (%)
3. sæti
9.796.520
km
4,66
Mannfjöldi
Samtals (2021)
Þéttleiki byggðar
3. sæti
333,287,557
33,6/km²
VLF
KMJ
áætl.
2022
Samtals
25.035 millj.
dala
1. sæti
Á mann
75.180 dalir (
7. sæti
VÞL
(2021)
0.921 (
21. sæti
Gjaldmiðill
Bandaríkjadalur
Tímabelti
UTC-
4 til -12
Sumartími: UTC-4 til -10
Þjóðarlén
.us
Landsnúmer
+1
Bandaríkin
(eða
Bandaríki Norður-Ameríku
skammstafað
BNA
) eru
sambandslýðveldi
sem er næststærsta
ríki
Norður-Ameríku
að
flatarmáli
(9,83 milljónir km²) og jafnframt það fjölmennasta með yfir 333 milljónir íbúa (árið 2021). Þau eru ennfremur fjórða stærsta land heims og það þriðja fjölmennasta. Þau teygja sig milli
Atlantshafs
og
Kyrrahafs
og eiga landamæri að
Kanada
í norðri og
Mexíkó
í suðri. Bandaríkin samanstanda af
50 fylkjum
sem njóta nokkurs sjálfræðis í eigin efnum og hafa eigin löggjöf sem þó má ekki stangast á við
stjórnarskrá Bandaríkjanna
. Auk sambandsríkjanna hafa Bandaríkin lögsögu yfir ýmsum hjálendum víða um heim.
Bandaríkin rekja uppruna sinn til
sjálfstæðisyfirlýsingarinnar
frá 4. júlí 1776 þegar þrettán
breskar
nýlendur
lýstu yfir eigin frelsi og sjálfstæði frá Breska heimsveldinu. Nýlendurnar höfðu betur í
Frelsisstríði Bandaríkjanna
en það var fyrsta nýlendustríðið þar sem nýlendan hafði betur en herraþjóðin. Nýlendurnar samþykktu sameiginlega stjórnarskrá í
Philadelphiu
þann 17. september 1787. Stjórnarskráin gerði nýlendurnar þrettán að einu lýðveldi.
Á 20. öldinni tóku Bandaríkin forystu í heiminum hvað varðar
efnahagsleg
pólitísk
hernaðarleg
og
menningarleg
áhrif. Bandaríska hagkerfið er það stærsta í heimi en
verg landsframleiðsla
Bandaríkjanna árið 2006 var 13 billjónir
bandaríkjadala
, það er að segja um það bil fjórðungur af vergri landframleiðslu alls heimsins.
Evrópusambandið
er stærra hagkerfi en Bandaríkin en er ekki ein þjóð.
Heiti
breyta
breyta frumkóða
Á ensku nefnast Bandaríkin
the United States of America
, skammstafað USA eða U.S.A., eða
the United States
, skammstafað US eða U.S. Áður fyrr var heitið í fleirtölu, en nú er algengast að fara með það eins og það væri eintöluorð. Á ensku er sömuleiðis algengt að nota orðin
America
(„Ameríka“) og
American
(„Ameríkani“) sem samheiti yfir Bandaríkin og Bandaríkjamenn, þótt það geti líka átt við önnur lönd
Ameríku
Elsta dæmið um notkun heitisins „Bandaríki Ameríku“ (
the United States of America
) er í bréfi sem
Stephen Moylan
skrifaði
Joseph Reed
sem var aðstoðarmaður George Washington 2. janúar 1776, þar sem Moylan óskaði eftir því að fá fullt umboð Bandaríkja Ameríku á Spáni til að óska eftir aðstoð í Frelsisstríðinu.
Elsta dæmið um þetta heiti á prenti er í dagblaðinu
The Virginia Gazette
6. apríl 1776.
Í öðru uppkastinu að
Sambandsgreinunum
sem
John Dickinson
skrifaði og lauk við ekki síðar en 17. júní 1776 stendur að nafn sambandsins skuli vera Bandaríki Ameríku.
Í júní sama ár skrifaði
Thomas Jefferson
orðin „Bandaríki Ameríku“ (
The United States of America
) með hástöfum efst á upprunalegt uppkast að
Sjálfstæðisyfirlýsingunni
Ekki er ljóst hvort það var eftir að Dickinson hafði skrifað sitt uppkast, eða áður.
Á íslensku heitir ríkið Bandaríkin (fleirtala með greini), en líka er algengt að nota lengra heitið „Bandaríki Norður-Ameríku“ og skammstöfunina BNA eða B.N.A. Orðin „bandarískur“ og „Bandaríkjamaður“ eru dregin af því. Til eru dæmi um notkun heitisins „Bandaríki Ameríku“ og samkvæmt ríkjaheitalista Árnastofnunar er það eina samheitið sem gefið er upp við „Bandaríkin“.
„Bandaríki Norður-Ameríku“ er hins vegar miklu mun algengari orðmynd á íslensku, hugsanlega vegna þess að hún er þreföld líkt og
United States of America
. Heitið „Ameríkani“ og óformlega styttingin „Kani“ er stundum notað á íslensku yfir Bandaríkjamenn.
Saga
breyta
breyta frumkóða
Forsaga og frumbyggjar
breyta
breyta frumkóða
Fyrstu íbúar
Norður-Ameríku
komu frá
Asíu
fyrir um það bil 12 þúsund árum yfir
Bering-landbrúna
, þar sem nú er
Beringssund
á milli
Síberíu
og
Alaska
. Áætlað er að á bilinu tvær til níu milljónir
frumbyggja
(indíána) hafi búið á því svæði sem nú er Bandaríkin, þegar
Evrópubúar
komu þangað fyrst. Evrópubúarnir báru með sér sjúkdóma á borð við
bólusótt
, sem frumbyggjarnir höfðu ekki kynnst áður og höfðu enga mótstöðu gegn; þeim fækkaði því mjög upp frá því. Þróuðustu samfélög þessara frumbyggja var að finna meðal
Anazasi-þjóðarinnar
í suðvestri og Woodland-indíánanna, sem byggðu
Cahokia
, borg sem stóð nálægt þeim stað þar sem nú er
St. Louis
; þar bjuggu 40.000 manns þegar mest var í kringum 1200 f.Kr.
Landnám Evrópumanna
breyta
breyta frumkóða
Norrænir menn
komu til Norður-Ameríku í kringum árið 1000 e.Kr. en þeir settust ekki að til frambúðar. Það var ekki fyrr en með leiðöngrum
Kristófers Kólumbusar
árið 1492 sem Evrópumenn fóru að senda þangað könnunarleiðangra og landnema.
Á 16. og 17. öld settust
Spánverjar
að í núverandi
Suðvesturríkjum Bandaríkjanna
og
Flórída
þar sem þeir stofnuðu borgirnar
St. Augustine
1565 og
Santa Fe
(í núverandi
Nýju-Mexíkó
) árið 1607. Fyrsta varanlega byggð
Englendinga
var
Jamestown
Virginíu
, einnig árið 1607. Á næstu áratugum stofnuðu
Hollendingar
einnig nokkrar landnemabyggðir á austurströndinni, þar á meðal
Nýju Amsterdam
, sem seinna varð að
New York
Svíar
höfðu einnig hug á landnámi í Ameríku og stofnuðu
Fort Christina
árið 1637 en misstu þá byggð til Hollendinga 1655.
Þá hófst umfangsmikið landnám
Breta
á austurströndinni. Landnemarnir voru að mestu látnir afskiptalausir af móðurlandinu fyrst um sinn eða fram að sigri Breta í
Frakka- og indíánastríðinu
en niðurstaða þess varð sú, að
Frakkar
gáfu eftir
Kanada
og svæðið í kringum
Vötnin miklu
. Þá fóru Bretar að innheimta skatta af 13 nýlendum sínum vestanhafs. Þetta þótti mörgum íbúum nýlendnanna ósanngjarnt þar sem þeim var neitað um að hafa málsvara í
breska þinginu
. Spennan á milli Breta og landnemanna jókst þangað til að út braust stríð,
Frelsisstríð Bandaríkjanna
, sem stóð frá 1776 til 1783.
Frá sjálfstæðisbaráttu til borgarastríðs
breyta
breyta frumkóða
George Washington
, fyrsti
forseti Bandaríkjanna
Árið 1776 klufu hinar þrettán nýlendur sig frá Bretlandi og stofnuðu Bandaríkin, fyrsta
sambandslýðveldi
heimsins, með útgáfu
Sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna
. Upphaflega var um að ræða laustengt bandalag sjálfstæðra ríkja. Miklar deilur spruttu á milli þeirra sem vildu halda því þannig og þeirra sem vildu sjá sterkari alríkisstjórn. Hinir síðarnefndu höfðu sigur með
Stjórnarskrá Bandaríkjanna
sem tók gildi árið 1789.
Mikill skortur á vinnuafli háði hinu nýja landi frá upphafi og víða nýttu menn sér
þrælahald
innfluttra
Afríkubúa
sem ódýrt vinnuafl, sérstaklega í suðurríkjunum. Um miðja 19. öld hafði myndast djúp gjá á milli norðurs og suðurs hvað varðaði réttindi ríkja og útvíkkun þrælahalds. Norðurríkin voru mótfallin þrælahaldi en suðurríkin álitu það nauðsynlegt og vildu taka það upp á þeim svæðum sem ekki tilheyrðu neinu ríki enn. Ágreiningurinn leiddi að lokum til þess að sjö suðurríki sögðu sig úr Bandaríkjunum og stofnuðu
Sambandsríki Ameríku
. Þau ríki sem eftir voru innan Bandaríkjanna gátu ekki sætt sig við það og
borgarastyrjöld
, hið svokallaða
Þrælastríð
, braust út. Fjögur ríki til viðbótar gengu til liðs við Suðurríkin eftir að stríðið hófst. Meðan á því stóð gaf
Abraham Lincoln
út yfirlýsingu þess efnis að gefa skyldi öllum þrælum í Suðurríkjunum frelsi en því var ekki að fullu hrint í framkvæmd fyrr en eftir sigur norðanmanna 1865, upplausn Suðurríkjasambandsins og gildistöku þrettánda viðauka stjórnarskrárinnar. Borgarastríðið útkljáði þá spurningu hvort einstökum ríkjum væri heimilt að segja sig úr Bandaríkjunum og er það einnig álitið vera sá punktur í sögunni þar sem völd alríkisstjórnarinnar urðu víðtækari en völd fylkjanna.
Frá borgarastríði til nútímans
breyta
breyta frumkóða
19. öld
bættust mörg ný fylki við hin þrettán upphaflegu eftir því sem landið stækkaði til vesturs. Í byrjun 19. aldar börðust Bandaríkjamenn og Kanadabúar við Breta, fyrrverandi nýlenduherra sína, í
Stríðinu 1812
. Þegar Texas var innlimað í Bandaríkin árið 1845 eftir að hafa verið sjálfstætt ríki í tíu ár, olli það ólgu á meðal ráðamanna í Mexíkó. Í kjölfarið brast á
stríð á milli landanna
sem stóð yfir frá 1846 til 1848. Þessu stríði lauk formlega með friðarsamningi, sem kenndur er við
Guadalupe Hidalgo
og urðu mexíkósk stjórnvöld að afsala sér stórum hluta yfirráðasvæðis síns, nánar tiltekið ríkjunum í norðri. Þessi innlimun landsvæða í Bandaríkin, hin svokölluðu Suðvesturríki, eru
Kalifornía
Nevada
og
Utah
auk stórra landsvæða sem falla undir
Nýju-Mexíkó
Colorado
Arizona
og
Wyoming
. Vaxandi fólksfjöldi í austrinu og sívaxandi straumur innflytjenda frá Evrópu hvatti landnema til þess að leita vestur og ryðja hinum amerísku indíánum úr vegi í leiðinni. Á sumum svæðum hafði fjöldi þeirra dregist mjög saman vegna sjúkdóma en á öðrum svæðum voru þeir fluttir til með valdi. Útþensla Bandaríkjanna átti sér ekki aðeins stað á meginlandi Norður-Ameríku heldur komust þau yfir
Púertó Ríkó
Gvam
og
Filippseyjar
með sigri í
Spænsk-bandaríska stríðinu
. Filipseyjar hlutu sjálfstæði árið
1946
Einkatölvan
var fundin upp í Bandaríkjunum.
Á þessu tímabili urðu Bandaríkin einnig leiðandi
iðnveldi
í heiminum. En í kjölfar
iðnbyltingarinnar
hafði
England
verið stærsta iðnveldið. Sú þróun hélt áfram á
20. öldinni
, árið 1914, við upphaf
fyrri heimsstyrjaldarinnar
var
efnahagur Bandaríkjanna
sá stærsti í heiminum og átti enn eftir að vaxa. Þar var gnægt
náttúruauðlinda
fjárfesting
í atvinnulífinu var mikil,
fólksfjölgun
var mikil vegna
Vesturferða
, og
framleiðni
einnig mikil. Mestur iðnaður var í Norð-Austurhluta Bandaríkjanna en í Suðurhlutanum var landbúnaður meira áberandi. Bandaríkin urðu á þessum tíma vagga nýsköpunar og tækniþróunar;
síminn
sjónvarpið
tölvan
internetið
kjarnorka
flugvélin
og
geimferðir
eru allt tækninýjungar sem voru fundnar upp eða verulega endurbættar í Bandaríkjunum.
Kreppan mikla
reið yfir Bandaríkin á árunum 1929 til 1941 og var mikið áfall. Að auki tók landið þátt í bæði
fyrri
og
seinni heimsstyrjöldinni
með
Bandamönnum
í bæði skiptin. Í seinna stríðinu urðu Bandaríkin fyrsta og eina þjóðin til þess að hafa beitt
kjarnorkuvopnum
í stríði. Eftir stríðið stóðu Bandaríkin og
Sovétríkin
eftir sem einu
risaveldi
heimsins og háðu hið hugmyndafræðilega „
Kalda stríð
“ og skiptu heiminum niður í áhrifasvæði. Í
Víetnam
og
Kóreu
voru þó háð „heit stríð“ á sömu forsendu — að berjast gegn útbreiðslu
kommúnisma
Eftir fall Sovétríkjanna stóðu Bandaríkin eftir sem eina risaveldi heimsins með efnahagslega og hernaðarlega yfirburði. Síðan þá hafa þau verið virk í hernaðarinnrásum og
friðargæslu
um víða veröld, þar á meðal í
Kósóvó
Haítí
Sómalíu
og
Líberíu
og í
Persaflóastríðinu 1991
. Eftir
árásirnar
World Trade Center
og
Pentagon
þann 11. september árið 2001 var hrundið af stað svokölluðu „
stríði gegn hryðjuverkum
“ en á grundvelli þess var ráðist inn í
Afganistan
og
Írak
Landfræði
breyta
breyta frumkóða
Hæðarkort af fylkjum Bandaríkjanna.
Skóglendi í Bandaríkjunum árið 2011
Bandaríkin eru þriðja eða fjórða stærsta land heims miðað við
heildarflatarmál
Rússland
og
Kanada
eru stærri en það veltur á skilgreiningu hvort
Kína
sé það einnig. 48 fylki Bandaríkjanna eru samtengd en tvö nýjustu fylkin eru staðsett nokkuð langt frá hinum. Það eru
Alaska
sem liggur að Kanada í vestri og
Hawaii
sem er
eyjaklasi
í suðvesturátt af meginlandi Bandaríkjanna.
Landsvæði Bandaríkjanna er afar fjölbreytt. Á austurströndinni eru stórar sléttur og
sumargrænir skógar
sem ná langt inn í land.
Appalachiafjöllin
skilja austurstöndina frá
Vötnunum miklu
og gresjunum í Miðvestrinu.
Mississippi-
og
Missourifljót
mynda saman fjórða lengsta fljótakerfi heims en þau renna að mestu frá norðri til suðurs í gegn um mitt landið.
Slétturnar miklu
teygja sig til vesturs þar til
Klettafjöll
taka við. Klettafjöllin eru fjallgarður sem nær suður til Nýju-Mexíkó og stendur hæst í um 4.300 m (14.000 fet) í Colorado. Á vesturströndinni er að finna háa fjallgarða en einnig
eyðimerkur
á borð við
Mojave-eyðimörkina
. Hæsti tindur Bandaríkjanna (og Norður-Ameríku) er
Denali
í Alaska en hann er 6.194 m. Virk
eldfjöll
er að finna í Alaska, Hawaii og Washingtonfylki. Í
Yellowstone-þjóðgarðinum
er gríðarstór megineldstöð sem er sú stærsta í Norður-Ameríku. En 59 svæði hafa verið sett í flokk
þjóðgarða í Bandaríkjunum
Þriðjungur Bandaríkjanna er
skógi
vaxinn. Þetta er svipað hlutfall og var árið 1920 en 2/3 þeirra skóga sem voru um 1600.
Stjórnmál
breyta
breyta frumkóða
Aðalgrein:
Bandarísk stjórnmál
Bandaríska þinghúsið
þar sem
Bandaríkjaþing
kemur saman:
Öldungadeild Bandaríkjanna
til vinstri, og
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
til hægri.
Hvíta húsið
er aðsetur
Bandaríkjaforseta
Hæstiréttur Bandaríkjanna
er æðsti dómstóll landsins.
Bandaríkin eru
sambandsríki
50
fylkja
, auk
alríkisumdæmisins Columbia
fimm yfirráðasvæða
og nokkurra óbyggðra
eyja
10
11
Bandaríkin eru elsta sambandsríki heims. Þau eru
sambandslýðveldi
sem býr við
fulltrúalýðræði
þar sem vald meirihlutans er takmarkað af vernd réttinda minnihlutans sem er tryggð með
lögum
12
Í bandaríska sambandskerfinu deilist fullveldi landsins á tvö stjórnsýslustig: alríkisstig og fylkisstig. Innan hvers fylkis eru svo sýslur og sveitastjórnir. Yfirráðasvæði Bandaríkjanna heyra undir alríkisstjórnina.
Stjórnarskrá Bandaríkjanna
er æðsta lagaheimild landsins. Þar er kveðið á um stjórnskipan, ábyrgð alríkisstjórnarinnar og samband hennar við fylkisstjórnirnar. Stjórnarskránni hefur verið breytt 27 sinnum
13
Fyrstu 10 breytingarnar (
Réttindaskrá Bandaríkjanna
) og
fjórtánda breytingin
mynda grundvöll einstaklingsréttinda Bandaríkjamanna. Öll lög og reglugerðir heyra undir
eftirlit dómstóla
, og hægt er að fella öll lög úr gildi ef dómstólar ákveða að þau stangist á við stjórnarskrána. Þessi regla um eftirlit dómstóla er ekki í stjórnarskránni, en var staðfest af hæstarétti í málinu
Marbury gegn Madison
árið 1803.
14
Bandaríkin hafa búið við
tveggja flokka kerfi
lengst af í sögu sinni.
15
Í bandarískri
stjórnmálamenningu
er litið svo á að mið-hægriflokkurinn
Repúblikanaflokkurinn
sé
íhaldssamur
og mið-vinstriflokkurinn
Demókrataflokkurinn
sé
frjálslyndur
16
17
Bandarísk stjórnsýsla féll úr 69. sæti í það 76. á
spillingarvísitölu
Transparency International
árið 2019.
18
Árið 2021 voru Bandaríkin í 26. sæti á
lýðræðisvísitölunni
og var lýst sem „gölluðu lýðræði.
19
Stjórnsýslueiningar
breyta
breyta frumkóða
Aðalgrein:
Fylki Bandaríkjanna
Fylki Bandaríkjanna eru:
Alabama
Alaska
Arizona
Arkansas
Colorado
Connecticut
Delaware
Flórída
Georgía
Hawaii
Idaho
Illinois
Indiana
Iowa
Kalifornía
Kansas
Kentucky
Louisiana
Maine
Maryland
Massachusetts
Michigan
Minnesota
Mississippi
Missouri
Montana
Nebraska
Nevada
New Hampshire
New Jersey
New York
Norður-Dakóta
Norður-Karólína
Nýja-Mexíkó
Ohio
Oklahoma
Oregon
Pennsylvanía
Rhode Island
Suður-Dakóta
Suður-Karólína
Tennessee
Texas
Utah
Vermont
Vestur-Virginía
Virginía
Washington
Wisconsin
Wyoming
Efnahagslíf
breyta
breyta frumkóða
Bandaríkjadalur
(með mynd af
George Washington
) er mest notaði gjaldmiðill í alþjóðaviðskiptum og algengasti
forðagjaldmiðill
heims.
20
Kauphöllin í New York
Wall Street
er stærsta kauphöll heims miðað við
markaðsverðmæti
skráðra félaga.
21
Samkvæmt
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
er
verg landsframleiðsla
Bandaríkjanna miðað við nafnvirði 22,7 billjón dalir, sem er 24% af
heimsframleiðslunni
að markaðsvirði og 16% heimsframleiðslunnar miðað við
kaupmáttarjöfnuð
22
23
Milli 1983 og 2008 var raunhagvöxtur í Bandaríkjunum 3,3%, samanborið við 2,3% veginn hagvöxt í hinum
G7-ríkjunum
24
Landið er í fimmta sæti yfir
lönd eftir landsframleiðslu á mann
miðað við nafnvirði
25
og í sjöunda sæti
með kaupmáttarjöfnuði
23
Bandaríkin hafa verið stærsta hagkerfi heims að minnsta kosti frá aldamótunum 1900.
26
Bandaríkin eru í fararbroddi á heimsvísu í
tækniþróun
og
nýsköpun
, sérstaklega á sviði
gervigreindar
tölvutækni
lyfjaþróunar
, og þróunar
læknabúnaðar
loftferðabúnaðar
og
hergagna
27
Efnahagur landsins býr að miklum
náttúruauðlindum
, þróuðum innviðum og mikilli framleiðni.
28
Bandaríkin búa yfir næstverðmætustu náttúruauðlindum heims, sem voru metnar á 44,98 billjón dali árið 2019, þótt nokkur munur sé milli heimilda.
29
Í Bandaríkjunum eru hæstu meðaltekjur heimila og launafólks meðal
OECD-ríkja
30
Árið 2013 voru Bandaríkin með sjöttu hæstu miðtekjur heimila, og höfðu þá fallið úr fjórða sæti frá 2010.
31
32
Bandaríkjadalur
er mest notaði gjaldmiðill í
alþjóðaviðskiptum
og er helsti
forðagjaldmiðill
heims. Styrkur hans byggist á
herstyrk
Bandaríkjanna,
olíudalakerfinu
og
evrudölum
sem tengjast því, auk mjög stórs markaðar fyrir bandarísk
ríkisskuldabréf
20
33
Nokkur lönd notast við bandaríkjadal sem opinberan gjaldmiðil, og nokkur önnur notast við hann sem
raungjaldmiðil
34
35
Kauphöllin í New York
og
Nasdaq
eru stærstu kauphallir heims miðað við
markaðsvirði
og
viðskiptamagn
36
37
Helstu viðskiptalönd Bandaríkjanna eru
Kína
Evrópusambandið
Kanada
Mexíkó
Indland
Japan
Suður-Kórea
Bretland
og
Taívan
38
Bandaríkin eru stærsta innflutningsland heims og annað stærsta útflutningsland heims.
39
Landið er með
fríverslunarsamninga
við nokkur erlend ríki. Þar á meðal er
fríverslunarsamningur Bandaríkjanna, Mexíkó og Kanada
(USMCA).
40
Í skýrslu um samkeppnishæfni á heimsvísu frá 2019 voru Bandaríkin í öðru sæti á eftir
Singapúr
41
Af 500 fyrirtækjum á
Fortune Global 500-listanum
eru 121 með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum.
42
Þótt efnahagur Bandaríkjanna hafi þróast frá iðnaði, eru Bandaríkin enn iðnaðarstórveldi.
43
Bandaríkin eru með minna
velferðarkerfi
og dreifa minna af tekjum gegnum skattkerfið en flest önnur
hátekjulönd
44
Bandaríkin voru þannig í 41. sæti yfir lönd eftir
launaójöfnuði
af 156 löndum árið 2017
45
og voru þar hæst allra þróaðra ríkja.
46
Þann 2. febrúar 2022 voru
þjóðarskuldir
Bandaríkjanna 30 billjónir dala.
47
Íbúar
breyta
breyta frumkóða
Manntalsskrifstofa Bandaríkjanna
gaf út að íbúar landsins væru 331.449.281 þann 1. apríl 2020.
48
Talan nær ekki yfir óinnfelldu ríkin (
Púertó Ríkó
Gvam
Bandarísku Jómfrúaeyjar
Bandaríska Samóa
og
Norður-Maríanaeyjar
) og aðrar smáeyjar. Bandaríkin eru þar með
þriðja fjölmennasta ríki heims
, á eftir
Kína
og
Indlandi
49
Samkvæmt íbúafjöldaklukku stofnunarinnar, bættist nýr íbúi við á 100 sekúndna fresti 28. janúar 2021, eða 864 á dag.
50
Árið 2018 voru 52% Bandaríkjamanna yfir 15 ára aldri giftir, 6% voru ekklar eða ekkjur, 10% fráskildir og 32% höfðu aldrei gifst.
51
Árið 2020 var
frjósemishlutfall
Bandaríkjanna 1,64 börn á konu
52
og hæsta hlutfall barna á heimili með einu foreldri (23%).
53
Íbúar Bandaríkjanna eiga sér fjölbreyttan uppruna. 37 skipulagðir upprunahópar voru með yfir milljón sem töldu sig til þeirra samkvæmt könnun árið 2004.
54
Stærsta þjóðarbrotið samkvæmt eigin skilgreiningu eru hvítir Bandaríkjamenn af evrópskum uppruna, eða 57,8%.
55
Bandaríkjamenn af rómönskum uppruna teljast vera 18,7% íbúa og þeldökkir Bandaríkjamenn 12,1%. Fjórði stærsti hópurinn eru Bandaríkjamenn af asískum uppruna, 5,9%. Bandaríkjamenn sem telja sig til
frumþjóða Ameríku
eru um 1%. Þess ber að gæta að í manntalinu hefur verið hægt að haka við fleiri en einn valmöguleika frá árinu 2000 og árið 2020 merktu 4,1% allra svarenda við tvo eða fleiri möguleika (yfir 10% þeirra sem merktu við rómanskan uppruna).
56
Árið 2020 var
miðaldur
íbúa Bandaríkjanna 38,5 ár.
49
Árið 2018 voru næstum 90 milljón innflytjendur og annarrar kynslóðar innflytjendur í Bandaríkjunum, eða 28% allra íbúa landsins.
57
Af þeim íbúum sem fæddir voru erlendis, miðað við árið 2017, voru 45% með ríkisborgararétt, 27% með löglega skráða varanlega búsetu, 6% með löglega tímabundna búsetu og 23% ólöglegir innflytjendur.
58
Bandaríkin hafa um áratugaskeið verið leiðandi í móttöku
flóttafólks
og tekið við fleirum en öll önnur lönd heims samanlagt.
59
Stærstu borgir Bandaríkjanna
Sæti
Borg
Fylki
Íbúafjöldi
Stórborgarsvæði
Íbúafjöldi
Svæði
New York-borg
New York-fylki
8.398.748
18.818.536
Norðausturströndin
Los Angeles
Kalifornía
3.990.456
12.950.129
Vesturströndin
Chicago
Illinois
2.705.994
9.505.748
Miðvesturríkin
Houston
Texas
2.325.502
5.539.949
Suðurríkin
Phoenix
Arizona
1.660.272
13
4.039.182
Vesturríkin
Philadelphia
Pennsylvanía
1.584.138
5.826.742
Norðausturströndin
San Antonio
Texas
1.532.233
29
1.942.217
Suðurríkin
San Diego
Kalifornía
1.425.976
17
2.941.454
Vesturströndin
Dallas
Texas
1.345.047
6.003.967
Suðurríkin
10
San Jose
Kalifornía
1.030.119
30
1.787.123
Vesturströndin
List of United States cities by population
2018 (Enska Wikipedia)
New York
Los Angeles
Chicago
Houston
Phoenix
Philadelphia
San Antonio
San Diego
Dallas
San Jose
class=notpageimage|
10 stærstu borgir Bandaríkjanna
Tungumál
breyta
breyta frumkóða
Tungumál (2007)
60
Enska
einungis
225,5 milljónir
Spænska
, þar með talin
spænsk kreólamál
34,5 milljónir
Kínverska
2,5 milljónir
Franska
, þar með talin
frönsk kreólamál
2,0 milljónir
Tagalog tungumál
1,5 milljónir
Víetnamska
1,2 milljónir
Þýska
1,1 milljónir
Kóreska
1,1 milljónir
Enska
er í raun opinbert tungumál Bandaríkjanna, enda þótt ekkert opinbert mál sé skilgreint í alríkislögum. Samt gera sum lög, þar á meðal lög um veitingu ríkisborgararéttar, ráð fyrir ensku sem tungumáli landsins. Árið 2007 töluðu um 226 milljónir eða 80% landsmanna fimm ára og eldri einungis ensku heima hjá sér. Um 12% landsmanna tala
spænsku
heima hjá sér en spænska er næstalgengasta tungumálið í Bandaríkjunum og algengasta annað mál sem kennt er í skólum.
61
Sumir Bandaríkjamenn vilja að enska verði gerð að opinberu máli landsins með lögum, eins og er raunin í 28 ríkjum.
62
Hawaii
eru bæði
hawaiska
og enska skilgreind sem opinber tungumál í lögum ríkisins.
63
Nýja-Mexíkó
er ekkert opinbert tungumál skilgreint en lög kveða á um notkun bæði ensku og spænsku. Í
Louisiana
er því eins farið með ensku og frönsku.
64
Í sumum öðrum ríkjum, svo sem
Kaliforníu
kveða lög á um að ákveðin opinber skjöl verði að vera tiltæk á spænsku auk ensku, þar á meðal skjöl er varða dómstóla.
65
Sum svæði viðurkenna stöðu tungumála innfæddra auk ensku:
Samóamál
og
kamorrómál
eru viðurkennd á Bandarísku Samóaeyjum og í Guam; Spænska er opinbert mál á
Púertó Ríkó
Menntun
breyta
breyta frumkóða
Low Memorial-bókasafnið í
Columbia-háskóla
Bæði fylki og sveitarfélög reka opinbera skóla í Bandaríkjunum en
menntamálaráðuneyti Bandaríkjanna
setur skólahaldi reglur og styrkir starfsemina. Í flestum fylkjum er skólaskylda frá sex eða sjö ára aldri til átján ára aldurs en þá lýkur menntaskóla (e.
high school
) eftir tólfta bekk. Í sumum fylkjum geta nemendur lokið menntaskóla sextán eða sautján ára gamlir. Um 12% barna ganga í einkaskóla og rétt rúmlega 2% barna hljóta menntun sína heima fyrir. Um 84,6% Bandaríkjamanna hafa lokið stúdentsprófi um 25 ára aldur.
Fjölmargir
háskólar
eru starfræktir í Bandaríkjunum, bæði ríkisreknir og einkareknir, auk
alþýðuháskóla
. Um 52,6% Bandaríkjamanna hafa stundað nám á háskólastigi og 27,2% ljúka
B.A.-gráðu
(eða annarri sambærilegri gráðu í grunnnámi). Um 9,6% Bandaríkjamanna hafa lokið framhaldsnámi á háskólastigi.
Margir af
fremstu háskólum heims
eru í Bandaríkjunum, þar á meðal
Harvard
Princeton
Yale
Stanford
Columbia
Cornell
Brown
Pennsylvaníuháskóli
Chicago-háskóli
MIT
, og
Caltech
Læsi
í Bandaríkjunum er talið vera 99%.
Sameinuðu þjóðirnar
gefa Bandaríkjunum einkunnina 0,97 á menntakvarða og eru Bandaríkin því í tólfta sæti.
66
Menning
breyta
breyta frumkóða
Frelsisstyttan
var gjöf frá
Frakklandi
og hefur orðið að táknmynd fyrir
ameríska drauminn
67
Bandaríkin eru
fjölmenningarríki
sem byggist á miklum fjölda ólíkra upprunahópa, hefða og gilda.
68
69
Menningarleg áhrif Bandaríkjanna eru auk þess mikil á heimsvísu.
70
71
Frumbyggjamenning í Bandaríkjunum telur meðal annars menningu
Frumþjóðanna
Hawaii-búa
og
frumbyggja Alaska
, en þess utan eru núverandi íbúar Bandaríkjanna eða forfeður þeirra nær allir innflytjendur eða fluttir þangað sem þrælar síðustu fimm aldirnar.
72
Bandarísk meginstraumsmenning er því
vestræn menning
sem byggist að mestu leyti á menningu evrópskra innflytjenda með menningaráhrifum meðal annars frá afrískum þrælum.
68
73
Síðustu tvær aldir hefur aðflutningur fólks frá
Asíu
og sérstaklega
Rómönsku Ameríku
, bæst við blöndu bandarískrar menningar sem er stundum lýst sem
bræðslupotti
eða ósamstæðri
salatskál
68
Þrátt fyrir aðlögun innflytjenda að bandarískri meginstraumsmenningu er mikill félagslegur ójöfnuður sem byggist meðal annars á uppruna, kynþætti
74
og auðlegð.
75
Bandarískt samfélag er stundum talið einkennast af sterku
vinnusiðferði
76
samkeppnishæfni,
77
og einstaklingshyggju.
78
Bandaríska trúarjátningin
“ leggur áherslu á frelsi, jafnrétti, einkaeign, lýðræði, réttarríki og takmörkuð afskipti stjórnvalda.
79
Miðað við aðrar þjóðir gefa Bandaríkjamenn mjög mikið til góðgerðamála. Samkvæmt könnun
Charities Aid Foundation
frá 2016 gáfu Bandaríkjamenn 1,44% af landsframleiðslu til góðgerðamála, mun meira en nokkrir aðrir.
80
Ameríski draumurinn
, trúin á
félagslegan hreyfanleika
, er lykill að aðdráttarafli landsins fyrir innflytjendur.
81
Hvort þessi trú byggist á staðreyndum er umdeilt.
82
83
84
Algeng skoðun í Bandaríkjunum er að landið sé
stéttlaust samfélag
85
en fræðimenn hafa bent á markverðan mun á stéttum í landinu, sem hefur áhrif á félagsmótun, tungumál og gildi.
86
Bandaríkjamenn eiga til að leggja mikla áherslu á efnahagslegan árangur, en telja líka jákvætt að vera
meðalmaður
87
Bandarískar bókmenntir
breyta
breyta frumkóða
Bandaríski rithöfundurinn og skáldið Walt Whitman árið 1887.
18. öld
og snemma á
19. öldinni
voru bandarískar bókmenntir undir miklum áhrifum frá evrópskum bókmenntum. Rithöfundar á borð við
Nathaniel Hawthorne
Edgar Allan Poe
og
Henry David Thoreau
skópu sérstakt yfirbragð og tón bandarískra bókmennta um miðja 19. öld. Rithöfundurinn
Mark Twain
og skáldið
Walt Whitman
voru áhrifamiklir á síðari hluta 19. aldar.
Emily Dickinson
er nú álitin mikilvægt skáld enda þótt hún væri flestum ókunn í lifanda lífi. Nokkur ritverk eru öðrum fremur talin einkenna bandaríska menningu en það eru saga
Hermans Melville
Moby-Dick
(1851),
Ævintýri Stikilsberja-Finns
(1885) eftir Mark Twain og
Hinn mikli Gatsby
(1925) eftir
F. Scott Fitzgerald
Ellefu bandarískir borgarar hafa hlotið
bókmenntaverðlaun Nóbels
, síðast
Toni Morrison
árið 1993.
William Faulkner
og
Ernest Hemingway
eru gjarnan taldir meðal áhrifamestu höfunda 20. aldar. Vinsælar bókmenntagreinar eins og
vestrar
og
krimmar
urðu til í Bandaríkjunum.
Bandarísk heimspeki
breyta
breyta frumkóða
Bandaríski heimspekingurinn
Hilary Putnam
Henry David Thoreau og
Ralph Waldo Emerson
voru frumkvöðlar bandarískrar heimspeki á
19. öld
. Á síðari hluta 19. aldar og í upphafi þeirrar
20.
varð
gagnhyggja
til hjá heimspekingum á borð við
Charles Sanders Peirce
William James
og
John Dewey
. Á 20. öld voru bandarískir heimspekingar áfram undir miklum áhrifum frá gagnhyggjunni en urðu einnig fyrir miklum áhrifum frá
rökgreiningarheimspekinni
frá Evrópu, ekki síst á fjórða áratug aldarinnar þegar margir af helstu heimspekingum Evrópu flúðu
stríðið
. Meðal merkra bandarískra heimspekinga 20. aldar má nefna
W.V.O. Quine
Hilary Putnam
Wilfrid Sellars
Nelson Goodman
Donald Davidson
Richard Rorty
Saul Kripke
og
John Searle
. Bandaríski málvísindamaðurinn
Noam Chomsky
hefur einnig látið að sér kveða. Segja má að
John Rawls
hafi einn síns liðs vakið
stjórnmálaheimspeki
af værum blundi þegar bók hans
Kenning um réttlæti
kom út árið 1971. Í kjölfarið fylgdi
Robert Nozick
og fjöldi annarra stjórnmálaheimspekinga.
Bandarísk matarmenning
breyta
breyta frumkóða
Deep-dish
pizza
var fundin upp í
Chicago
Illinois
og dreifðist þaðan um heiminn. Hún er til í ýmsum formum, sem dæmi má nefna afbrigði frá
Alaska
þar sem elgskjöt er haft sem álegg. Ítölsk pylsa er algengt álegg á pizzur í Bandaríkjunum.
BBQ-sósa
er önnur vel þekkt bandarísk uppfinning og er í miklu uppáhaldi hjá fólki víðs vegar um heiminn. BBQ-sósa er mjög vinsæl með
grillmat
en mikið er borðað af honum í Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Coca Cola
var fundið upp árið 1886 af
dr. John Stith Pemberton
, lyfjafræðingi frá Atlanta í Georgíu.
Matreiðsluaðferðir Bandaríkjanna eru sambland hefða frá ýmsum stöðum, meðal annars frá Frakklandi, Afríku og frumbyggjum.
Grasker
einkenna mið- og norðurríki Bandaríkjanna, skelfiskur við Mexíkóflóa og nautasteikur eru helst þekktar í Texas.
88
Til viðbótar við þessa flóru eiga borgir Bandaríkjanna heilu hverfin sem bjóða upp á matarmenningu frá ýmsum heimshornum. Stórum matarskömmtum og
skyndibitamenningu
hefur oft verið kennt um offitu í Bandaríkjunum.
89
Tilvísanir
breyta
breyta frumkóða
Wilson, Kenneth G. (1993).
The Columbia guide to standard American English
. New York: Columbia University Press. bls.
27–28
ISBN
978-0-231-06989-2
DeLear, Byron (July 4, 2013)
Who coined 'United States of America'? Mystery might have intriguing answer.
"Historians have long tried to pinpoint exactly when the name 'United States of America' was first used and by whom
... This latest find comes in a letter that Stephen Moylan, Esq., wrote to Col. Joseph Reed from the Continental Army Headquarters in Cambridge, Mass., during the Siege of Boston. The two men lived with Washington in Cambridge, with Reed serving as Washington's favorite military secretary and Moylan fulfilling the role during Reed's absence."
Christian Science Monitor
(Boston, MA).
Touba, Mariam (November 5, 2014)
Who Coined the Phrase 'United States of America'? You May Never Guess
"Here, on January 2, 1776, seven months before the Declaration of Independence and a week before the publication of Paine's
Common Sense
, Stephen Moylan, an acting secretary to General George Washington, spells it out, 'I should like vastly to go with full and ample powers from the United States of America to Spain' to seek foreign assistance for the cause."
New-York Historical Society Museum & Library
Fay, John (July 15, 2016)
The forgotten Irishman who named the 'United States of America'
"According to the NY Historical Society, Stephen Moylan was the man responsible for the earliest documented use of the phrase 'United States of America'. But who was Stephen Moylan?"
IrishCentral.com
"To the inhabitants of Virginia", by A PLANTER
. Dixon and Hunter's. April 6, 1776, Williamsburg, Virginia. Letter is also included in Peter Force's
American Archives
The Virginia Gazette
.. bindi
5 no.
1287. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 19. desember 2014.
Safire 2003
, bls.
199.
„Ríkjaheiti“
Árnastofnun
. Sótt 22.9.2022
American forests
Geymt
22 mars 2016 í
Wayback Machine
Forest history society. Skoðað 29. apríl, 2016.
„Common Core Document of the United States of America“
U.S. Department of State
. 30. desember 2011
. Sótt 10 júlí 2015
The New York Times 2007
, bls.
670.
Onuf 2010
, bls.
xvii.
Scheb, John M.; Scheb, John M. II (2002).
An Introduction to the American Legal System
. Florence, KY: Delmar, p. 6.
ISBN 978-0-7668-2759-2
Feldstein, Fabozzi, 2011
, p. 9
Schultz, 2009
, pp. 164, 453, 503
Etheridge, Eric; Deleith, Asger (19 ágúst 2009).
„A Republic or a Democracy?“
The New York Times blogs
. Sótt 7 nóvember 2010
. „The US system seems essentially a two-party system.
...“
David Mosler; Robert Catley (1998).
America and Americans in Australia
. Greenwood Publishing Group. bls.
83.
ISBN
978-0-275-96252-4
. Sótt 11 apríl 2016
Grigsby, Ellen (2008).
Analyzing Politics: An Introduction to Political Science
. Cengage Learning. bls.
106–
107.
ISBN
978-0-495-50112-1
„Corruption Perceptions Index 2019“
(PDF)
transparency.org
Transparency International
. bls.
12 & 13. Afrit af
upprunalegu
(PDF)
geymt þann 18 febrúar 2020
. Sótt 7 febrúar 2020
Francis, Ellen (10 febrúar 2022).
„Global freedoms have hit a 'dismal' record low, with pandemic restrictions making things worse, report says“
The Washington Post
(bandarísk enska).
ISSN
0190-8286
. Sótt 18 febrúar 2022
„The Implementation of Monetary Policy – The Federal Reserve in the International Sphere“
(PDF)
. Sótt 24 ágúst 2010
Kat Tretina and Benjamin Curry (9 apríl 2021).
„NYSE: What Is The New York Stock Exchange“
Forbes
. Sótt 24 júlí 2022
„Report for Selected Countries and Subjects“
www.imf.org
„World Economic Outlook Database, October 2022“
IMF.org
International Monetary Fund
. október 2022
. Sótt 11 október 2022
Hagopian, Kip; Ohanian, Lee (1 ágúst 2012).
„The Mismeasure of Inequality“
Policy Review
(174). Afrit af
upprunalegu
geymt þann 3. desember 2013
. Sótt 23 janúar 2020
„United Nations Statistics Division—National Accounts“
unstats.un.org
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 18 ágúst 2018
. Sótt 1 júní 2018
Fordham, Benjamin (október 2017). „Protectionist Empire: Trade, Tariffs, and United States Foreign Policy, 1890–1914“.
Studies in American Political Development
31
(2):
170–
192.
doi
10.1017/s0898588x17000116
ISSN
0898-588X
S2CID
148917255
„United States reference resource“
The World Factbook
Central Intelligence Agency
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 12. desember 2021
. Sótt 31 maí 2019
Wright, Gavin, and Jesse Czelusta, "Resource-Based Growth Past and Present", in
Natural Resources: Neither Curse Nor Destiny
, ed. Daniel Lederman and William Maloney (World Bank, 2007), p. 185.
ISBN 0821365452
Anthony, Craig (12. september 2016).
„10 Countries With The Most Natural Resources“
Investopedia
„Income“
Better Life Index
. OECD
. Sótt 28. september, 2019
„Household Income“
Society at a Glance 2014: OECD Social Indicators
. Society at a Glance. OECD Publishing. 18. mars 2014.
doi
10.1787/soc_glance-2014-en
ISBN
9789264200722
ISSN
1995-3984
. Sótt 29 maí 2014
„OECD Better Life Index“
. OECD
. Sótt 25. nóvember, 2012
Zaw Thiha Tun (29 júlí 2015).
„How Petrodollars Affect The U.S. Dollar“
. Sótt 14 október 2016
Benjamin J. Cohen,
The Future of Money
, Princeton University Press, 2006; cf. "the dollar is the de facto currency in Cambodia", Charles Agar,
Frommer's
Vietnam
, 2006, p. 17
„US GDP Growth Rate by Year“
multpl.com
. US Bureau of Economic Analysis. 31. mars 2014
. Sótt 18 júní 2014
„Monthly Reports - World Federation of Exchanges“
. WFE.
Table A – Market Capitalization of the World's Top Stock Exchanges (As at end of June 2012)
. Securities and Exchange Commission (China).
„Top Trading Partners“
. U.S. Census Bureau. desember 2016
. Sótt 8 júlí 2017
„World Trade Statistical Review 2019“
(PDF)
World Trade Organization
. bls.
100
. Sótt 31 maí 2019
„United States free trade agreements“
Office of the United States Trade Representative
. Sótt 31 maí 2019
„Rankings: Global Competitiveness Report 2013–2014“
(PDF)
. World Economic Forum
. Sótt 1 júní 2014
„Global 500 2016“
Fortune
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 21. september 2018
. Sótt 1 nóvember 2022
„USA Economy in Brief“
. U.S. Dept. of State, International Information Programs. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 12. mars 2008.
Isabelle Joumard; Mauro Pisu; Debbie Bloch (2012).
„Tackling income inequality The role of taxes and transfers“
(PDF)
. OECD
. Sótt 21 maí 2015
CIA World Factbook
"Distribution of Family Income"
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 4 júní 2011
. Sótt 17 júní 2018
Gray, Sarah (4 júní 2018).
„Trump Policies Highlighted in Scathing U.N. Report On U.S. Poverty“
Fortune
. Sótt 13. september 2018
. „
"The United States has the highest rate of income inequality among Western countries", the report states.“
Rappeport, Alan (1 febrúar 2022).
„U.S. National Debt Tops $30 Trillion as Borrowing Surged Amid Pandemic“
The New York Times
(bandarísk enska).
ISSN
0362-4331
. Sótt 2 febrúar 2022
„Census Bureau's 2020 Population Count“
United States Census
. Sótt 26 apríl 2021
„The World Factbook: United States“
. Central Intelligence Agency. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 12. desember 2021
. Sótt 10 nóvember 2018
„Population Clock“
www.census.gov
„Table MS-1. Marital Status of the Population 15 Years Old and Over, by Sex, Race and Hispanic Origin: 1950 to Present“
Historical Marital Status Tables
. U.S. Census Bureau
. Sótt 11. september 2019
Hamilton, Brady E.; Martin, Joyce A.; Osterman, Michelle J.K. (maí 2021).
Births: Provisional data for 2020
(PDF)
(Report). Vital Statistics Rapid Release.
bindi. Hyattsville, MD: National Center for Health Statistics.
doi
10.15620/cdc:104993
„U.S. has world's highest rate of children living in single-parent households“
Pew Research Center
(enska)
. Sótt 17. mars 2020
„Ancestry 2000“
(PDF)
. U.S. Census Bureau. júní 2004.
Afrit
(PDF)
af uppruna á 4. desember 2004
. Sótt 2. desember 2016
„A Breakdown of 2020 Census Demographic Data“
NPR
. 13 ágúst 2021.
„Race and Ethnicity in the United States: 2010 Census and 2020 Census“
. US Census Bureau
. Sótt 2. desember 2021
„Frequently Requested Statistics on Immigrants and Immigration in the United States“
Migration Policy Institute
. 14. mars 2019.
„Key findings about U.S. immigrants“
. Pew Research Center. 17 júní 2019. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 27 febrúar 2020
. Sótt 27 október 2022
Jens Manuel Krogstad (7 október 2019).
„Key facts about refugees to the U.S.“
. Pew Research Center.
„Table 53—Languages Spoken at Home by Language: 2007“
(PDF)
Statistical Abstract of the United States 2010
. U.S. Census Bureau
. Sótt 21. september 2009
„Foreign Language Enrollments in United States Institutions of Higher Learning“
(PDF)
. MLA. haust 2002. Afrit af
upprunalegu
(PDF)
geymt þann 3. ágúst 2008
. Sótt 16. október 2006
Jody Feder (25. janúar 2007).
„English as the Official Language of the United States—Legal Background and Analysis of Legislation in the 110th Congress“
(PDF)
. Ilw.com (Congressional Research Service)
. Sótt 19. júní 2007
„The Constitution of the State of Hawaii, Article XV, Section 4“
. Hawaii Legislative Reference Bureau. 7. nóvember 1978. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 24. júlí 2013
. Sótt 19. júní 2007
Susan J. Dicker (2003).
Languages in America: A Pluralist View
. Clevedon, UK: Multilingual Matters. bls.
216
220–
25.
„California Code of Civil Procedure, Section 412.20(6)“
. Legislative Counsel, State of California. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 22. júlí 2010
. Sótt 17. desember 2007
„California Judicial Council Forms“
. Judicial Council, State of California
. Sótt 17. desember 2007
„Human Development Indicators“
(PDF)
. United Nations Development Programme, Human Development Reports. 2005
. Sótt 14. janúar 2008
„Statue of Liberty“
World Heritage
. UNESCO
. Sótt 4 janúar 2022
Adams, J.Q.; Strother-Adams, Pearlie (2001).
Dealing with diversity
: the anthology
. Chicago: Kendall/Hunt Pub.
ISBN
978-0-7872-8145-8
Thompson, William E.; Hickey, Joseph V. (2004).
Society in focus
: an introduction to sociology
(5th. útgáfa). Boston: Pearson/Allyn and Bacon.
ISBN
978-0-205-41365-2
BBC, April 2008: Country Profile: United States of America
Fergie, Dexter (24. mars 2022).
„How American Culture Ate the World“
The New Republic
ISSN
0028-6583
. Sótt 3 júlí 2022
Fiorina, Morris P.
; Peterson, Paul E. (2010).
The New American democracy
(7th. útgáfa). London: Longman. bls.
97.
ISBN
978-0-205-78016-7
Holloway, Joseph E. (2005).
Africanisms in American culture
(2nd. útgáfa). Bloomington: Indiana University Press. bls.
18–
38.
ISBN
978-0-253-21749-3
Johnson, Fern L. (2000).
Speaking culturally
: language diversity in the United States
. Sage Publications. bls.
116
ISBN
978-0-8039-5912-5
Bonilla-Silva, Eduardo (2003).
Racism without Racists: Color-blind Racism and the Persistence of Racial Inequality in the United States
. Lanham: Rowman & Littlefield. bls.
2–
29.
ISBN
978-0-7425-1633-5
óvirkur tengill
"Contempt for the poor in US drives cruel policies," says UN expert“
OHCHR
. 4 júní 2018
. Sótt 5 júní 2018
Porter, Gayle (nóvember 2010).
„Work Ethic and Ethical Work: Distortions in the American Dream“
Journal of Business Ethics
96
(4).
Springer
535–
550.
doi
10.1007/s10551-010-0481-6
JSTOR
29789736
S2CID
143991044
Stephens, R.H. (september 1952). „The Role Of Competition In American Life“.
The Australian Quarterly
24
(3).
Australian Institute of Policy and Science
9–
14.
JSTOR
41317686
Grabb, Edward; Baer, Douglas; Curtis, James (1999). „The Origins of American Individualism: Reconsidering the Historical Evidence“.
Canadian Journal of Sociology
24
(4).
University of Alberta
511–
533.
doi
10.2307/3341789
ISSN
0318-6431
JSTOR
3341789
Huntington, Samuel P.
(2004).
„Chapters 2–4“
Who are We?: The Challenges to America's National Identity
. Simon & Schuster.
ISBN
978-0-684-87053-3
. Sótt 25 október 2015
„GROSS DOMESTIC PHILANTHROPY: An international analysis of GDP, tax and giving“
(PDF)
Charities Aid Foundation
. janúar 2016
. Sótt 18 júlí 2022
Clifton, Jon (21. mars 2013).
„More Than 100 Million Worldwide Dream of a Life in the U.S. More than 25% in Liberia, Sierra Leone, Dominican Republic want to move to the U.S.“
. Gallup
. Sótt 10 janúar 2014
„A Family Affair: Intergenerational Social Mobility across OECD Countries“
(PDF)
Economic Policy Reforms: Going for Growth
. OECD. 2010
. Sótt 20. september 2010
Blanden, Jo; Gregg, Paul; Machin, Stephen (apríl 2005).
„Intergenerational Mobility in Europe and North America“
(PDF)
. Centre for Economic Performance. Afrit af
upprunalegu
(PDF)
geymt þann 23 júní 2006.
Gould, Elise (10 október 2012).
„U.S. lags behind peer countries in mobility“
Economic Policy Institute
. Sótt 15 júlí 2013
Winship, Scott (Spring 2013).
„Overstating the Costs of Inequality“
(PDF)
National Affairs
. Afrit af
upprunalegu
(PDF)
geymt þann 24 október 2013
. Sótt 10 janúar 2014
„Understanding Mobility in America“
Center for American Progress
. 26 apríl 2006.
Schneider, Donald (29 júlí 2013).
„A Guide to Understanding International Comparisons of Economic Mobility“
. The Heritage Foundation
. Sótt 22 ágúst 2013
Gutfeld, Amon (2002).
American Exceptionalism: The Effects of Plenty on the American Experience
. Brighton and Portland: Sussex Academic Press. bls.
65.
ISBN
978-1-903900-08-6
Zweig, Michael (2004).
What's Class Got To Do With It, American Society in the Twenty-First Century
. Ithaca, NY: Cornell University Press.
ISBN
978-0-8014-8899-3
„Effects of Social Class and Interactive Setting on Maternal Speech“
. Education Resource Information Center
. Sótt 27 janúar 2007
O'Keefe, Kevin (2005).
The Average American
. New York: PublicAffairs.
ISBN
978-1-58648-270-1
„Bandarísk matargerð“
Nóatún
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 23. apríl 2010
. Sótt 18. september 2010
„Bandaríkjamenn velja skyndibitann fram yfir hollustuna“
Bæjarins Besta, fréttavefur
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 4. desember 2011
. Sótt 18. september 2010
Tengt efni
breyta
breyta frumkóða
Listi yfir stærstu borgir Bandaríkjanna
Heimildir
breyta
breyta frumkóða
Fyrirmynd greinarinnar var „
United States
“ á
ensku
útgáfu
Wikipedia
. Sótt 18. september 2010.
Tenglar
breyta
breyta frumkóða
Wikimedia Commons
er með margmiðlunarefni sem tengist
Bandaríkjunum
Heimasíður Bandaríkjastjórnar
breyta
breyta frumkóða
USA.gov
, opinber heimasíða bandaríska stjórnkerfisins
United States House of Representatives
, opinber heimasíða fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
United States Senate
, opinber heimasíða öldungaráðsdeildar Bandaríkjaþings
Supreme Court of the United States
, opinber heimasíða hæstaréttar Bandaríkjanna
The White House
, opinber heimasíða Hvíta hússins
Upplýsingasíður
breyta
breyta frumkóða
Energy Information Administration
Geymt
11 febrúar 2010 í
Wayback Machine
, opinber upplýsingasíða um orkunotkun Bandaríkjanna
InfoUSA
Geymt
12 nóvember 2008 í
Wayback Machine
, alhliða upplýsingasíða um Bandaríkin
United States Census Bureau
United States Department of Agriculture: State Fact Sheets
The 50 States of the U.S.A.
Ýmsir tenglar
breyta
breyta frumkóða
„Bandaríki Norður-Ameríku“; grein í
Tímanum
1976
„Hvað heita öll fylki Bandaríkjanna?“
Vísindavefurinn
„Hvað eru Bandaríkin stór að flatarmáli?“
Vísindavefurinn
„Hve margir hafa forsetar Bandaríkjanna verið og hvað hétu þeir?“
Vísindavefurinn
„Hvert er vald varaforseta Bandaríkjanna, innan bandaríska stjórnsýslukerfisins?“
Vísindavefurinn
„Ef maður fæðist í Bandaríkjunum fær maður þá sjálfkrafa bandarískan ríkisborgararétt?“
Vísindavefurinn
„Hversu margir búa í Bandaríkjunum?“
Vísindavefurinn
„Af hverju eru Bandaríki Norður-Ameríku svona máttug?“
Vísindavefurinn
„Hvað getið þið sagt mér um frelsisstríð Bandaríkjanna?“
Vísindavefurinn
„Hvað borguðu Bandaríkjamenn fyrir Alaska þegar þeir keyptu það?“
Vísindavefurinn
Lönd í
Norður-Ameríku
Lönd
Alveg
Antígva og Barbúda
Bahamaeyjar
Bandaríkin
Barbados
Belís
Dóminíka
Dóminíska lýðveldið
El Salvador
Grenada
Gvatemala
Haítí
Hondúras
Jamaíka
Kanada
Kosta Ríka
Kúba
Mexíkó
Níkaragva
Panama
Sankti Kristófer og Nevis
Sankti Lúsía
Sankti Vinsent og Grenadínur
Trínidad og Tóbagó
Að hluta
Frakkland
Gvadelúpeyjar
Martinique
Holland
Bonaire
Saba
Sint Eustatius
Kólumbía
San Andrés og Providencia
Venesúela
Nueva Esparta
Dependencias Federales
Yfirráðasvæði
Danmörk
Grænland
Frakkland
Clipperton-eyja
St. Barthélemy
St. Martin
St. Pierre og Miquelon
Holland
Arúba
Curaçao
Sint Maarten
Bretland
Angvilla
Bermúda
Bresku Jómfrúaeyjar
Cayman-eyjar
Montserrat
Turks- og Caicoseyjar
Bandaríkin
Bandarísku Jómfrúaeyjar
Navassaeyja
Púertó Ríkó
Bandarísk fylki og yfirráðasvæði
Fylki
Alabama
Alaska
Arizona
Arkansas
Colorado
Connecticut
Delaware
Flórída
Georgía
Hawaii
Idaho
Illinois
Indiana
Iowa
Kalifornía
Kansas
Kentucky
Louisiana
Maine
Maryland
Massachusetts
Michigan
Minnesota
Mississippi
Missouri
Montana
Nebraska
Nevada
New Hampshire
New Jersey
New York
Norður-Karólína
Norður-Dakóta
Nýja-Mexíkó
Ohio
Oklahoma
Oregon
Pennsylvanía
Rhode Island
Suður-Karólína
Suður-Dakóta
Tennessee
Texas
Utah
Vermont
Vestur-Virginía
Virginía
Washington
Wisconsin
Wyoming
Alríkissvæði
District of Columbia
Hjálendur
Bandaríska Samóa
Bakereyja
Gvam
Howlandeyja
Jarviseyja
Johnstoneyja
Kingmanrif
Midwayeyja
Navassaeyja
Norður-Maríanaeyjar
Palmyraeyja
Púertó Ríkó
Bandarísku Jómfrúaeyjar
Varsímaeyja
Efnahagssamstarf Asíu- og Kyrrahafsríkjanna
(APEC)
Ástralía
Bandaríkin
Brúnei
Filippseyjar
Kanada
Kína
Hong Kong
Indónesía
Japan
Malasía
Mexíkó
Nýja Sjáland
Papúa Nýja Gínea
Perú
Rússland
Singapúr
Síle
Suður-Kórea
Taíland
Taívan
Víetnam
Efnahags- og framfarastofnunin
(OECD)
Austurríki
Ástralía
Bandaríkin
Belgía
Bretland
Chile
Danmörk
Eistland
Finnland
Frakkland
Grikkland
Holland
Ísland
Ísrael
Írland
Ítalía
Japan
Kanada
Lettland
Litáen
Lúxemborg
Mexíkó
Noregur
Nýja-Sjáland
Portúgal
Pólland
Slóvakía
Slóvenía
Spánn
Suður-Kórea
Sviss
Svíþjóð
Tékkland
Tyrkland
Ungverjaland
Þýskaland
G-20
Argentína
Ástralía
Bandaríkin
Brasilía
Bretland
Evrópusambandið
Frakkland
Indland
Indónesía
Ítalía
Japan
Kanada
Kína
Mexíkó
Rússland
Sádi-Arabía
Suður-Afríka
Suður-Kórea
Tyrkland
Þýskaland
Atlantshafsbandalagið
(NATÓ)
Albanía
Bandaríkin
Belgía
Bretland
Búlgaría
Danmörk
Eistland
Finnland
Frakkland
Grikkland
Holland
Ísland
Ítalía
Kanada
Króatía
Lettland
Litáen
Lúxemborg
Norður-Makedónía
Noregur
Pólland
Portúgal
Rúmenía
Slóvakía
Slóvenía
Spánn
Svartfjallaland
Svíþjóð
Tékkland
Tyrkland
Ungverjaland
Þýskaland
Fríverslunarsamningur Norður-Ameríku
(NAFTA)
Bandaríkin
Kanada
Mexíkó
Sótt frá „
Flokkar
Bandaríkin
Stofnað 1776
Norður-Ameríkulönd
Bandaríkin
Bæta við umræðu
US