Breska-Kólumbía - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Breska-Kólumbía
Fáni Bresku-Kólumbíu
Skjaldarmerki Bresku-Kólumbíu
Kjörorð
Splendor Sine Occasu (Óskertur Ljómi)
Önnur kanadísk fylki og yfirráðasvæði
Höfuðborg
Victoría (Bresku-Kólumbíu)
Stærsta borgin
Vancouver
Fylkisstjóri
Salma Lakhani
Forsætisráðherra
Danielle Smith
Sameinaði íhaldsflokkurinn
Svæði
944,735
km
(5. Sæti)
Land
925,186 km
Vatn
19,549 km
(2,1%)
Fólksfjöldi (
2019
Fólksfjöldi
5.000.000 (námundað) (3. Sæti)
Þéttleiki byggðar
4,8 /km
(7. Sæti)
Aðild
ríkjabandalagið
Dagsetning
20. júlí
1871
Röð
Sjöunda
Tímabelti
UTC-
8 & -7
Skipting á þingi
Neðri málstofa
36
Öldungadeild
Skammstafanir
Póstur
BC
ISO
3166-2
CA-BC
Póstfangsforskeyti
Vefur
www.gov.bc.ca
Helstu þéttbýlisstaðir.
Upphleypt kort af Bresku-Kólumbíu.
Mount Robson í Klettafjöllum.
Breska-Kólumbía
(e. British Columbia) er
fylki
suðvestast í
Kanada
. Það var sjötta fylkið til að ganga í fylkjasambandið (sjöunda ef yfirráðasvæðin eru tekin með). Fjöll og skógar eru áberandi í landslagi fylkisins.
Söguágrip
breyta
breyta frumkóða
Á því landsvæði sem nú er Breska-Kólumbía nær saga frumbyggja yfir a.m.k. 10.000 ár. Evrópskir landkönnuðir fóru þar um undir lok 18. aldar, en landnám í stórum stíl hófst á fyrri hluta 19. aldar. Hudson Bay félagið sem verslaði með skinn nefndi svæðið eftir Kólumbíufljóti árið 1858. Árið 1871 varð það 6. hérað Kanada. Lokið var við síðasta legg Kyrrahafslestarinnar (Pacific Rail) til Vancouver árið 1885 og með tilkomu hennar urðu efnahagslegar framfarir. Skógarhögg varð æ mikilvægari grein.
Landafræði og náttúrufar
breyta
breyta frumkóða
Breska-Kólumbía er 944,735
km2
að flatarmáli. Fylkið á landamæri að
Alberta
í austri,
Júkon
Norðvesturhéruðunum
og bandaríska fylkinu
Alaska
í norðri og bandarísku fylkjunum
Washington
Idaho
og
Montana
í suðri.
Þrír fjórðu hlutar fylkisins eru fjalllendi í yfir 1000 metra hæð, þar á meðal
Klettafjöll
í austri,
Strandfjöll
í vestri og
Fossafjöll
í suðri. Hæsta fjallið er Mount Fairweather, nálægt landamærum Alaska, 4.663 metrar yfir sjávarmáli. Í miðju fylkinu er háslétta þar sem rignir lítið, hún er fremur gróðursnauð og telst að hluta eyðimörk. Hins vegar er vesturhluti
Vancouvereyju
úrkomusamasti staður Norður-Ameríku. Ströndin er mjög vogskorin og með mörgum fjörðum og eyjum. Stærstu eyjarnar fyrir utan Vancouvereyju eru í
eyjaklasanum
Haida Gwaii
Columbia-fljót
á upptök sín í fylkinu og rennur til Kyrrahafsstrandar Bandaríkjanna.
Um 60% fylkisins eru skógi vaxin. Finna má mörg hundruð ára gömul tré af tegundum eins og
risalífviði
marþöll
degli
og
sitkagreni
í tempruðu regnskógunum við vesturströndina. Mikið er af
blágreni
hvítgreni
og
fjallaþini
inni í landi. Aðeins um 5% svæði fylkisins eru hentug til ræktunar.
Mörg vernduð svæði og þjóðgarðar eru innan Bresku-Kólumbíu. 12,5% fylkisins eru verndað land. Meðal þjóðgarða eru
Glacier-þjóðgarðurinn
Kootenay-þjóðgarðurinn
Yoho-þjóðgarðurinn
Pacific Rim-þjóðgarðurinn
og
Mount Revelstoke-þjóðgarðurinn
Sumarið 2021 mældist hæsti hiti í Kanada í þorpinu Lytton í fylkinu eða tæpar 50 gráður.
Samfélag
breyta
breyta frumkóða
Fólksfjöldi í fylkinu var rúmlega 5 milljónir árið 2019.
Vancouver
er stærsta borg fylkisins og þriðja stærsta borg Kanada. Borgin
Victoria
Vancouvereyju
er næststærsta borgin og höfuðborg fylkisins. Stærsta borgin í norðri er
Prince George
. Flestir íbúa fylkisins búa innan marka Vancouver, Victoria og nálægra svæða.
Um 72% vinnandi fólks starfar í þjónustugeiranum. Ferðaþjónusta, skógarhögg og fiskveiðar eru meðal atvinnugreina. Asískir innflytjendur eru um fjórðungur íbúa Bresku-Kólumbíu.
Heimild
breyta
breyta frumkóða
Wikimedia Commons
er með margmiðlunarefni sem tengist
Breska-Kólumbía
Fyrirmynd greinarinnar var „
British Columbia
“ á
ensku
útgáfu
Wikipedia
. Sótt 21. nóv. 2016.
Tenglar
breyta
breyta frumkóða
Norðvestur Kyrrahafssamfélagið
óvirkur tengill
— Wiki um norðvestur Kyrrahaf
Ferðamannavefur Bresku-Kólumbíu
The Political Economy of British Columbia's Rainforests
Geymt
14 júní 2006 í
Wayback Machine
Kanadísk fylki og sjálfstjórnarsvæði
Fylki
Breska-Kólumbía
Alberta
Saskatchewan
Manitóba
Ontaríó
Québec
Nýja-Brúnsvík
Eyja Játvarðs prins
Nýja-Skotland
Nýfundnaland og Labrador
Sjálfstjórnarsvæði
Júkon
Norðvesturhéruðin
Núnavút
Sótt frá „
Flokkar
Breska Kólumbía
Kanadísk fylki og sjálfstjórnarsvæði
Breska-Kólumbía
Bæta við umræðu