Dýr - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dýr
Vísindaleg flokkun
Veldi
Heilkjörnungar
Eukaryota
Ríki
Dýraríkið
Animalia
Linnaeus
(1758)
Fylkingar
Flögudýr
Placozoa
Holdýr
Cnidaria
Kambhveljur
Ctenophora
Svampdýr
Porifera
Tvíhliða dýr
Bilateria
) ~30 fylkingar
Samheiti
Metazoa
(Haeckel 1874)
Choanoblastaea
(Nielsen 2008)
Gastrobionta
(Rothm. 1948)
Zooaea
(Barkley 1939)
Euanimalia
(Barkley 1939)
Dýr
fræðiheiti
Animalia
) eru hópur
lífvera
sem myndar sérstakt
ríki
dýraríkið
. Dýr eru
ófrumbjarga
fjölfrumungar
, færir um
hreyfingu
og gerð úr
frumum
sem hafa ekki
frumuveggi
(dýrsfrumum). Dýr eru fær um
kynæxlun
. Þau hafa
vöðvafrumur
og þróast úr egglaga
blöðrufóstri
við upphaf
fósturþroska
. Vöxtur dýra fer venjulega fram í öllum
líkamshlutum
og hættir við
kynþroska
. Dýr nærast á öðrum
lífverum
, til dæmis
plöntum
, öðrum dýrum eða dýraleifum.
Búið er að lýsa yfir 1,5 milljón tegundum af dýrum í um 35 fylkingum. Af þeim eru um 1,05 milljón
skordýr
. Um 85.000 tegundir dýra eru
lindýr
og um 65.000 eru
hryggdýr
. Talið er að fjöldi dýrategunda á jörðinni gæti verið allt að 7,77 milljónir. Minnstu dýrin eru aðeins 8,5 μm á lengd (sníkjudýrið
Myxobolus shekel
), en þau stærstu (
steypireyðar
) allt að 33,6 metrar. Dýr mynda flókin tengsl við
vistkerfi
sín og aðrar tegundir og taka þátt í
fæðuvef
Dýrafræði
fæst við rannsóknir á dýrum, en rannsóknir á atferli dýra eru gerðar innan
atferlisfræði
Flestar dýrategundir tilheyra undirríki
tvíhliða dýra
Bilateria
) sem er stór grein dýra með
tvíhliða samhverfa
líkamsmynd
. Af núlifandi tegundum tvíhliða dýra er til litla grunnfylkingin
Xenacoelomorpha
, en langflestar tegundir eru annað hvort
frummunnar
Protostomia
liðdýr
lindýr
flatormar
liðormar
þráðormar
o.s.frv.) eða
nýmunnar
Deuterostomia
skrápdýr
kragaormar
og
hryggdýr
, þar sem hryggdýr eru stærsta undirfylkingin). Fundist hafa menjar um forkambrískar lífverur frá
Ediacaríum
, seinast á
frumlífsöld
, sem hafa verið túlkaðar sem dýr. Frá
Toníum
, sem er fyrsta tímabil
nýfrumlífsaldar
, hafa fundist steingervingar sem benda til tilvistar frumstæðra
svampdýra
. Nær allar núverandi fylkingar dýra komu fram á sjónarsviðið í
Kambríumsprengingunni
sem hófst fyrir 539 milljónum ára, og flestir
flokkar
dýra komu fram á
Ordóvisíum
fyrir 485,4 milljón árum. Fundist hafa 6.331 hópar
erfðavísa
sem öll dýr eiga sameiginlega. Hugsanlega var síðasti sameiginlegi forfaðir allra dýra uppi fyrir 650 milljón árum.
Gríski heimspekingurinn
Aristóteles
flokkaði dýr í dýr með blóð og dýr án blóðs.
Carl Linneus
setti fram fyrstu
vísindalegu flokkunina
þar sem hann skipti dýrum í sex flokka í bókinni
Systema Naturae
árið 1735. Árið 1809 greindi
Jean-Baptiste Lamarck
á milli 14 fylkinga dýra. Árið 1874 gerði
Ernst Haeckel
greinarmun á fjölfruma vefdýrum (
Metazoa
, sem nú eru einfaldlega kölluð „dýr“) og einfruma
frumdýrum
Protozoa
, sem eru ekki lengur flokkuð með dýrum). Í dag reiðir flokkunarfræðin sig í auknum mæli á aðferðir
sameindaþróunarfræði
til að greina
erfðafræðilegan
skyldleika dýrategunda.
Menn
hagnýta aðrar dýrategundir á margvíslegan hátt, eins og sem
fæðu
(þar á meðal
kjöt
egg
og
mjólk
), fyrir mikilvægan efnivið (eins og
leður
skinn
og
ull
), sem
gæludýr
og
vinnudýr
. Fyrsta
húsdýrið
var
hundurinn
, en menn hafa notað hunda við
veiðar
, sem
varðhunda
og í
stríði
Hestar
dúfur
og
ránfuglar
hafa líka verið notuð sem vinnudýr. Menn stunda
sportveiði
á öðrum dýrategundum, bæði land- og lagardýrum. Önnur dýr hafa haft mikla menningarlega þýðingu fyrir menn og koma fyrir í elstu
hellamálverkum
og sem
verndardýr
frá fyrstu tíð. Dýr koma þannig víða fyrir í
trúarbrögðum
list
skjaldarmerkjum
stjórnmálum
og
íþróttum
Einkenni
breyta
breyta frumkóða
Dýr eru einu lífverurnar þar sem frumuknippið sem myndast við upphaf fósturþroskans (1) myndar hola kúlu eða
blöðrufóstur
(2).
Það er ýmislegt sem aðgreinir dýr frá öðrum lífverum. Sem dæmi má taka að dýr eru
heilkjörnungar
og oftast fjölfrumungar sem meðal annars aðgreinir þau frá
gerlum
Ólíkt jurtum og þörungum sem eru
frumbjarga
(framleiða sína eigin næringu)
eru dýr
ófrumbjarga
og nærast á lífrænu efni sem þau melta innvortis.
Nær öll dýr nota
loftháða öndun
Öll dýr eru
hreyfanleg
10
og geta fært líkama sinn úr stað á einhverju
æviskeiði
, en sum dýr (til dæmis svampar, kórallar, kræklingar og hrúðurkarlar) gerast
botnsætin
síðar á ævinni.
Blöðrufóstur
er stig
fósturþroska
sem aðeins dýr hafa og gerir
frumusérhæfingu
mögulega, sem aftur leiðir til sérhæfðra vefja og líffæra.
11
Flest dýr hafa sérhæfð líffæri eins og
taugakerfi
meltingarkerfi
og
vöðva
Bygging
breyta
breyta frumkóða
Öll dýr eru gerð úr frumum sem eru umluktar dæmigerðu
utanfrumuefni
úr
kollageni
og sveigjanlegri
sykurhvítu
12
Þegar dýr vaxa myndar þetta utanfrumuefni tiltölulega sveigjanlegan grunn sem frumur geta hreyfst um og skipað sér niður í, sem gerir myndun flóknari eininga mögulega. Utanfrumuefnið getur
kalkað
og myndað þannig líffæri eins og
bein
skeljar
og
gadda
13
Aðrar fjölfruma lífverur, eins og þörungar, jurtir og sveppir, hafa stífa frumuveggi og vaxa því stöðugt.
14
Dýrafrumur eru einstakar að því leyti að þær hafa
frumutengi
sem nefnast
tengideplar
þétttengi
og
halddeplar
15
Með nokkrum undantekningum (sérstaklega svampdýr og flögudýr) skiptast líkamar dýra í sérhæfða
vefi
16
Meðal þeirra eru
vöðvar
sem gera dýrinu kleyft að hreyfa sig, og
taugavefir
, sem bera boð til að samræma starfsemi líkamans. Dýr eru auk þess oftast með innri
meltingarfæri
með ýmist einu opi (holdýr, kambhveljur og flatormar) eða tveimur (flest tvíhliða dýr).
17
Æxlun og vöxtur
breyta
breyta frumkóða
Nær öll dýr, eins og þessar
drekaflugur
, fjölga sér með
kynæxlun
Nær öll dýr eru fær um einhvers konar
kynæxlun
18
Þau framleiða
einlitna
kynfrumur
með
meiósu
, með litlar hreyfanlegar
sæðisfrumur
og stærri hreyfingarlausar
eggfrumur
19
Þessar frumur renna saman og mynda
okfrumu
20
Okfruman skiptir sér með
mítósu
og myndar hola kúlu sem nefnist
blöðrufóstur
. Hjá svampdýrum synda þessi blöðrufóstur á nýja stað, festa sig við botninn og mynda nýjan svamp.
21
Hjá flestum öðrum dýrum gengur blöðrufóstrið í gegnum flóknari umbreytingar:
22
Fyrst breytist það í
vembil
með
smeygingu
. Vembillinn eða holfóstrið er með meltingarhol og tvö aðgreind
kímlög
útlag
sem snýr út og
innlag
sem snýr inn.
23
Í flestum tilvikum myndast líka þriðja kímlagið,
miðlag
, á milli þeirra.
24
Kímlögin mynda svo ólíka vefi og líffæri.
25
Endurtekin
innræktun
, þar sem mökun á sér stað milli náinna skyldmenna, leiðir yfirleitt til
innræktarhnignunar
í stofninum vegna aukningar á skaðlegum
víkjandi
erfðaeinkennum.
26
27
Dýr hafa þróað með sér ýmsar aðferðir til að forðast skyldleikaræktun.
28
Sum dýr geta æxlast með
kynlausri æxlun
, sem oft getur af sér erfðafræðilegan
klón
foreldrisins. Þetta getur átt sér stað með
hlutun
knappskotum
(eins og í ættkvíslinni
Hydra
og öðrum
holdýrum
); eða með
meyfæðingu
, þar sem frjóvguð egg verða til án
mökunar
, eins og hjá
blaðlúsum
29
30
Fjölbreytni
breyta
breyta frumkóða
Í töflunni hér fyrir neðan er áætlaður fjöldi tegunda sem lýst hefur verið fyrir helstu fylkingar dýra,
31
ásamt helstu búsvæðum (á landi, í ferskvatni
32
eða í sjó),
33
og hvort þau lifi sjálfstæðu lífi eða sníkjulífi.
34
Áætlaður fjöldi tegunda byggist á fjölda þeirra tegunda sem lýst hefur verið vísindalega. Með ýmsum aðferðum hefur verið spáð fyrir um miklu hærri tölur, en þær eru mjög breytilegar eftir aðferðum. Þannig hefur 25-27.000 tegundum þráðorma verið lýst, en útgefinn áætlaður fjöldi tegunda þráðorma getur verið allt að 100 milljónir.
35
Með því að byggja á mynstrum í
flokkunarfræðinni
, hefur verið reiknað út að fjöldi dýrategunda gæti verið 7,77 milljónir, ef þau dýr eru meðtalin sem ekki hefur verið lýst.
36
37
Fylking
Dæmi
Lýstar tegundir
Landdýr
Sjávardýr
Vatnadýr
Sjálfstæð
Sníkjudýr
Liðdýr
Arthropoda
1.257.000
31
Já 1.000.000
skordýr
38
Já >40.000
stórkrabbar
39
Já 94.000
32
Já
33
Já >45.000
34
Lindýr
Mollusca
85.000
31
107.000
40
Já 35.000
40
Já 60.000
40
Já 5.000
32
12.000
40
Já
33
Já >5.600
34
Seildýr
Chordata
>70.000
31
41
Já 23.000
42
Já 13.000
42
Já 18.000
32
9,000
42
Já
Já 40
granar
43
34
Flatormar
Platyhelminthes
29.500
31
Já
44
Já
33
Já 1.300
32
Já
33
3.000–6.500
45
Já >40.000
34
4.000–25.000
45
Þráðormar
Nematoda
25.000
31
Já (mold)
33
Já 4.000
35
Já 2.000
32
Já
11.000
35
Já 14.000
35
Liðormar
Annelida
17.000
31
Já (mold)
33
Já
33
Já 1.750
32
Já
Já 400
34
Holdýr
Cnidaria
16.000
31
Já
33
Já (fá)
33
Já
33
Já >1.350
slímdýr
34
Svampdýr
Porifera
10.800
31
Já
33
200–300
32
Já
Já
46
Skrápdýr
Echinodermata
7.500
31
Já 7.500
31
Já
33
Mosadýr
Bryozoa
6.000
31
Já
33
Já 60–80
32
Já
Hjóldýr
Rotifera
2.000
31
Já >400
47
Já 2.000
32
Já
Ranaormar
Nemertea
1.350
48
49
Já
Já
Já
Bessadýr
Tardigrada
1.335
31
Já
50
(rakar jurtir)
Já
Já
Já
Heildarfjöldi lýstra tegunda (m.v. 2013): 1.525.728
31
Tilvísanir
breyta
breyta frumkóða
de Queiroz, Kevin; Cantino, Philip; Gauthier, Jacques, ritstjórar (2020). „Metazoa E. Haeckel 1874 [J. R. Garey and K. M. Halanych], converted clade name“.
Phylonyms: A Companion to the PhyloCode
(1st. útgáfa). CRC Press. bls.
1352.
doi
10.1201/9780429446276
ISBN
9780429446276
S2CID
242704712
Nielsen, Claus (2008). „Six major steps in animal evolution: are we derived sponge larvae?“.
Evolution & Development
10
(2):
241–
257.
doi
10.1111/j.1525-142X.2008.00231.x
PMID
18315817
S2CID
8531859
Rothmaler, Werner (1951). „Die Abteilungen und Klassen der Pflanzen“.
Feddes Repertorium, Journal of Botanical Taxonomy and Geobotany
54
2–
3):
256–
266.
doi
10.1002/fedr.19510540208
Avila, Vernon L. (1995).
Biology: Investigating Life on Earth
Jones & Bartlett Learning
. bls.
767–.
ISBN
978-0-86720-942-6
Davidson, Michael W.
„Animal Cell Structure“
Afrit
af uppruna á 20. september 2007
. Sótt 20. september 2007
„Palaeos:Metazoa“
Palaeos
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 28 febrúar 2018
. Sótt 25 febrúar 2018
Bergman, Jennifer.
„Heterotrophs“
. Afrit af
upprunalegu
geymt þann 29 ágúst 2007
. Sótt 30. september 2007
Douglas, Angela E.; Raven, John A. (janúar 2003).
„Genomes at the interface between bacteria and organelles“
Philosophical Transactions of the Royal Society B
358
(1429):
5–
17.
doi
10.1098/rstb.2002.1188
PMC
1693093
PMID
12594915
Mentel, Marek; Martin, William (2010).
„Anaerobic animals from an ancient, anoxic ecological niche“
BMC Biology
: 32.
doi
10.1186/1741-7007-8-32
PMC
2859860
PMID
20370917
Saupe, S. G.
„Concepts of Biology“
Afrit
af uppruna á 21 nóvember 2007
. Sótt 30. september 2007
Minkoff, Eli C. (2008).
Barron's EZ-101 Study Keys Series: Biology
(2nd, revised. útgáfa). Barron's Educational Series. bls.
48
ISBN
978-0-7641-3920-8
Alberts, Bruce; Johnson, Alexander; Lewis, Julian; Raff, Martin; Roberts, Keith; Walter, Peter (2002).
Molecular Biology of the Cell
(4th. útgáfa).
Garland Science
ISBN
978-0-8153-3218-3
Afrit
af uppruna á 23. desember 2016
. Sótt 29 ágúst 2017
Sangwal, Keshra (2007).
Additives and crystallization processes: from fundamentals to applications
John Wiley and Sons
. bls.
212
ISBN
978-0-470-06153-4
Becker, Wayne M. (1991).
The world of the cell
. Benjamin/Cummings.
ISBN
978-0-8053-0870-9
Magloire, Kim (2004).
Cracking the AP Biology Exam, 2004–2005 Edition
The Princeton Review
. bls.
45
ISBN
978-0-375-76393-9
Starr, Cecie (2007).
Biology: Concepts and Applications without Physiology
. Cengage Learning. bls.
362, 365.
ISBN
978-0-495-38150-1
. Sótt 19 maí 2020
Hillmer, Gero; Lehmann, Ulrich (1983).
Fossil Invertebrates
. Translated by J. Lettau. CUP Archive. bls.
54.
ISBN
978-0-521-27028-1
. Sótt 8 janúar 2016
Knobil, Ernst (1998).
Encyclopedia of reproduction, Volume 1
. Academic Press. bls.
315
ISBN
978-0-12-227020-8
Schwartz, Jill (2010).
Master the GED 2011
. Peterson's. bls.
371
ISBN
978-0-7689-2885-3
Hamilton, Matthew B. (2009).
Population genetics
Wiley-Blackwell
. bls.
55
ISBN
978-1-4051-3277-0
Ville, Claude Alvin; Walker, Warren Franklin; Barnes, Robert D. (1984).
General zoology
. Saunders College Pub. bls.
467
ISBN
978-0-03-062451-3
Hamilton, William James; Boyd, James Dixon; Mossman, Harland Winfield (1945).
Human embryology: (prenatal development of form and function)
. Williams & Wilkins. bls.
330.
Philips, Joy B. (1975).
Development of vertebrate anatomy
. Mosby. bls.
176
ISBN
978-0-8016-3927-2
The Encyclopedia Americana: a library of universal knowledge, Volume 10
. Encyclopedia Americana Corp. 1918. bls.
281.
Romoser, William S.
; Stoffolano, J. G. (1998).
The science of entomology
. WCB McGraw-Hill. bls.
156
ISBN
978-0-697-22848-2
Charlesworth, D.; Willis, J. H. (2009). „The genetics of inbreeding depression“.
Nature Reviews Genetics
10
(11):
783–
796.
doi
10.1038/nrg2664
PMID
19834483
S2CID
771357
Bernstein, H.; Hopf, F. A.; Michod, R. E. (1987). „The molecular basis of the evolution of sex“.
Advances in Genetics
24
323–
370.
doi
10.1016/s0065-2660(08)60012-7
ISBN
978-0-12-017624-3
PMID
3324702
Pusey, Anne; Wolf, Marisa (1996).
„Inbreeding avoidance in animals“
Trends Ecol. Evol
11
(5):
201–
206.
doi
10.1016/0169-5347(96)10028-8
PMID
21237809
Adiyodi, K. G.; Hughes, Roger N.; Adiyodi, Rita G. (júlí 2002).
Reproductive Biology of Invertebrates, Volume 11, Progress in Asexual Reproduction
. Wiley. bls.
116.
ISBN
978-0-471-48968-9
Schatz, Phil.
„Concepts of Biology: How Animals Reproduce“
. OpenStax College.
Afrit
af uppruna á 6. mars 2018
. Sótt 5. mars 2018
10
11
12
13
14
15
Zhang, Zhi-Qiang (30 ágúst 2013).
„Animal biodiversity: An update of classification and diversity in 2013. In: Zhang, Z.-Q. (Ed.) Animal Biodiversity: An Outline of Higher-level Classification and Survey of Taxonomic Richness (Addenda 2013)“
Zootaxa
3703
(1): 5.
doi
10.11646/zootaxa.3703.1.3
Afrit
af uppruna á 24 apríl 2019
. Sótt 2. mars 2018
10
Balian, E. V.; Lévêque, C.; Segers, H.; Martens, K. (2008).
Freshwater Animal Diversity Assessment
. Springer. bls.
628.
ISBN
978-1-4020-8259-7
10
11
12
13
14
Hogenboom, Melissa.
„There are only 35 kinds of animal and most are really weird“
. BBC Earth.
Afrit
af uppruna á 10 ágúst 2018
. Sótt 2. mars 2018
Poulin, Robert
(2007).
Evolutionary Ecology of Parasites
Princeton University Press
. bls.
ISBN
978-0-691-12085-0
Felder, Darryl L.; Camp, David K. (2009).
Gulf of Mexico Origin, Waters, and Biota: Biodiversity
. Texas A&M University Press. bls.
1111.
ISBN
978-1-60344-269-5
„How many species on Earth? About 8.7 million, new estimate says“
. 24 ágúst 2011.
Afrit
af uppruna á 1 júlí 2018
. Sótt 2. mars 2018
Mora, Camilo; Tittensor, Derek P.; Adl, Sina; Simpson, Alastair G.B.; Worm, Boris (23 ágúst 2011). Mace, Georgina M. (ritstjóri).
„How Many Species Are There on Earth and in the Ocean?“
PLOS Biology
(8): e1001127.
doi
10.1371/journal.pbio.1001127
PMC
3160336
PMID
21886479
Stork, Nigel E. (janúar 2018).
„How Many Species of Insects and Other Terrestrial Arthropods Are There on Earth?“
Annual Review of Entomology
63
(1):
31–
45.
doi
10.1146/annurev-ento-020117-043348
PMID
28938083
S2CID
23755007
Stork notes that 1m insects have been named, making much larger predicted estimates.
Poore, Hugh F. (2002).
„Introduction“
Crustacea: Malacostraca
. Zoological catalogue of Australia. 19.2A.
bindi.
CSIRO Publishing
. bls.
1–
7.
ISBN
978-0-643-06901-5
Nicol, David (júní 1969).
„The Number of Living Species of Molluscs“
Systematic Zoology
18
(2):
251–
254.
doi
10.2307/2412618
JSTOR
2412618
Uetz, P.
„A Quarter Century of Reptile and Amphibian Databases“
Herpetological Review
52
246–
255.
Afrit
af uppruna á 21 febrúar 2022
. Sótt 2 október 2021
gegnum ResearchGate.
Reaka-Kudla, Marjorie L.; Wilson, Don E.;
Wilson, Edward O.
(1996).
Biodiversity II: Understanding and Protecting Our Biological Resources
. Joseph Henry Press. bls.
90.
ISBN
978-0-309-52075-1
Burton, Derek; Burton, Margaret (2017).
Essential Fish Biology: Diversity, Structure and Function
. Oxford University Press. bls.
281–
282.
ISBN
978-0-19-878555-2
. „
Trichomycteridae
... includes obligate parasitic fish. Thus 17 genera from 2 subfamilies,
Vandelliinae
; 4 genera, 9spp. and
Stegophilinae
; 13 genera, 31 spp. are parasites on gills (Vandelliinae) or skin (stegophilines) of fish.“
Sluys, R. (1999). „Global diversity of land planarians (Platyhelminthes, Tricladida, Terricola): a new indicator-taxon in biodiversity and conservation studies“.
Biodiversity and Conservation
(12):
1663–
1681.
doi
10.1023/A:1008994925673
S2CID
38784755
Pandian, T. J. (2020).
Reproduction and Development in Platyhelminthes
. CRC Press. bls.
13–
14.
ISBN
978-1-000-05490-3
. Sótt 19 maí 2020
Morand, Serge; Krasnov, Boris R.; Littlewood, D. Timothy J. (2015).
Parasite Diversity and Diversification
. Cambridge University Press. bls.
44.
ISBN
978-1-107-03765-6
. Sótt 2. mars 2018
Fontaneto, Diego.
„Marine Rotifers | An Unexplored World of Richness“
(PDF)
. JMBA Global Marine Environment. bls.
4–
5.
Afrit
(PDF)
af uppruna á 2. mars 2018
. Sótt 2. mars 2018
Chernyshev, A. V. (september 2021).
„An updated classification of the phylum Nemertea“
Invertebrate Zoology
18
(3):
188–
196.
doi
10.15298/invertzool.18.3.01
S2CID
239872311
. Sótt 18 janúar 2023
Hookabe, Natsumi; Kajihara, Hiroshi; Chernyshev, Alexei V.; Jimi, Naoto; Hasegawa, Naohiro; Kohtsuka, Hisanori; Okanishi, Masanori; Tani, Kenichiro; Fujiwara, Yoshihiro; Tsuchida, Shinji; Ueshima, Rei (2022).
„Molecular Phylogeny of the Genus Nipponnemertes (Nemertea: Monostilifera: Cratenemertidae) and Descriptions of 10 New Species, With Notes on Small Body Size in a Newly Discovered Clade“
Frontiers in Marine Science
doi
10.3389/fmars.2022.906383
. Sótt 18 janúar 2023
Hickman, Cleveland P.; Keen, Susan L.; Larson, Allan; Eisenhour, David J. (2018).
Animal Diversity
(8th. útgáfa). McGraw-Hill Education.
ISBN
978-1-260-08427-6
Wikiorðabókin
er með skilgreiningu á orðinu
Dýr
Sótt frá „
Flokkur
Dýr
Dýr
Bæta við umræðu
US