Wikipedia:Hugtakaskrá - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið
Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Flýtileið
WP:ORÐ
Hugtakaská
Wikipediu hefur þann tilgang að kynna nýliðum og vönum notendum þau
hugtök
sem notuð eru á íslenska hluta Wikipediu.
Efnisyfirlit
0–9
Efst
breyta frumkóða
Aðgreiningarsíða
breyta frumkóða
Aðgreiningarsíða
(e.
disambiguation
) er síða sem þjónar þeim tilgangi að veita yfirlit yfir margar merkingar á sama orði eða heiti. Dæmi um aðgreiningarsíðu er
Mars (aðgreining)
. Til að tengja í aðgreiningarsíðu frá aðalnafni hennar skal skrifa
{{aðgreiningartengill}}
efst í greinina eins og gert er á
Mars
Almenningur
breyta frumkóða
Efni í
almenningi
er laust undan
höfundarétti
af einhverri ástæðu. Það getur verið vegna aldurs, vegna þess að lög undanskilja það frá vernd höfundaréttar, vegna þess að það getur ekki eðlis síns vegna notið slíkrar verndar, eða vegna þess að rétthafi hefur með ótvíræðum hætti gefið yfirlýsingu um það. Sjá umfjöllun um almenning hér:
Wikipedia:Almenningur
Auglýsing
breyta frumkóða
Sjá:
Hégómagrein
Athugendur tímabundra aðganga
breyta frumkóða
Athugendur tímabundra aðganga eru notendaréttindi sem er hægt að sækja um af reyndum notendum sem eru ekki möppudýr. Möppudýr sjá vistföng eða IP tölur tímabundra aðganga og þessi réttindi gera öðrum reyndum notendum kleift að sjá þau einnig. Þeir sem hafa 300 breytingar og 6 mánaða gamlan aðgang geta sótt um að vera athugendur tímabundra aðganga. Réttindin eru ætluð þeim sem þurfa þessar upplýsingar í baráttunni við skemmdarverk. Möppudýr sjá um að veita þessi réttindi.
breyta frumkóða
Bann
breyta frumkóða
Möppudýr
geta sett aðra notendur eða vistföng óskráðra í
bann
. Bann getur verið tímabundið eða ótímabundið og það getur verið misvíðtækt. Banni er oftast beitt vegna ítrekaðra
skemmdarverka
notenda. Sjá einnig:
Wikipedia:Bann
Breyting
breyta frumkóða
Breyting
er það að vista síðu sem búið er að breyta þannig að ný útgáfa hennar er birt. Hægt er að skoða einstakar breytingar í
breytingaskrá
til að sjá hverju var breytt.
Breytingarágrip
breyta frumkóða
Breytingarágrip
er stutt samantekt á því hvað felst í breytingu sem hægt er að skrifa í lítinn glugga fyrir neðan breytingargluggann. Það þykir góð
háttsemi
að útskýra breytingar, þó ekki sé nema með einu orði. Sjá einnig:
Hjálp:Breytingarágrip
Breytingarárekstur
breyta frumkóða
Breytingarárekstur
á sér stað þegar tveir eða fleiri gera breytingar á sömu síðu samtímis og getur það oft valdið misskilningi og ruglingi. Sjá nánar:
Breytingarárekstur
Breytingaskrá
breyta frumkóða
Breytingaskrá
er „saga“ síðunnar sem þú ert að skoða. Þar eru skráðar allar
breytingar
sem gerðar hafa verið á henni frá upphafi og hægt að nálgast síðuna eins og hún leit út á fyrri stigum.
Breytingastríð
breyta frumkóða
Breytingastríð
er það þegar tveir eða fleiri notendur breyta grein ítrekað þannig að hún falli að smekk þeirra eða taka ítrekað aftur breytingar, sem hafa verið gerðar. Breytingastríð eru óæskileg og stafa oft af því að notendur hafa ekki getað komist að samkomulagi um breytingar á spjallsíðu greinar og hafa ekki getað fengið neinn til að miðla málum.
breyta frumkóða
Commons
breyta frumkóða
Commons
er eitt af samstarfsverkefnum
Wikimedia
. Verkefnið hefur það markmið að safna saman skrám sem falla undir frjálst afnotaleyfi.
Creative Commons
breyta frumkóða
Creative Commons
eru fjölþjóðleg félagasamtök sem standa fyrir gerð frjálsra afnotaleyfa sem m.a. Wikipedia notast við. Sjá einnig:
Wikipedia:Höfundaréttur
breyta frumkóða
Eyðing
breyta frumkóða
Eyðing
síðu er aðgerð sem
möppudýr
geta framkvæmt. Flestar eyðingar eru gerðar án sérstakrar umræðu þar sem um augljóst bull eða skemmdarverk er að ræða. Í öðrum tilfellum ræður niðurstaða umræðu. Sjá einnig:
Wikipedia:Viðmið um eyðingu greina
breyta frumkóða
Flokkur
breyta frumkóða
Flokkur
er safn greina um svipað efni sem að búinn er til sjálfkrafa í samræmi við flokkamerkingar sem settar eru í greinar. Slíkar flokkamerkingar eru á forminu
[[Flokkur:Saga Íslands]]
þar sem hlutinn eftir tvípunktinn er nafn flokksins. Flokkarnir falla svo undir yfirflokka og þannig á flokkakerfið að vera nokkurskonar tré sem að veitir aðgang að öllu efni Wikipediu. Sjá einnig:
grunnflokkar
Frumrannsóknir
breyta frumkóða
Frumrannsóknir
eru eigin ályktanir og niðurstöðu greinarhöfunds sem ekki hafa birst í öðrum
áreiðanlegum heimildum
. Wikipedia er alfræðirit og birtir því ekki frumrannsóknir. Sjá einnig:
Wikipedia:Engar frumrannsóknir
breyta frumkóða
Gátt
breyta frumkóða
Gátt
er síða sem beinist að lesendum alfræðiritsins og er ætlað að veita yfirsýn yfir tiltekið efnissvið. Hugsa má sér að þær séu forsíður að sínum efnssviðum. Jafnframt er til
Úrvalsgátt
sem birtir úrvalsefni af Wikipediu.
GFDL
breyta frumkóða
GFDL
stendur fyrir
GNU Free Documentation License
sem er það frjálsa afnotaleyfi sem Wikipedia var gefin út samkvæmt, en sambærilegt leyfi Creative Commons hefur nú tekið við. Sjá einnig grein um
GFDL
og
Wikipedia:Höfundaréttur
Google-próf
breyta frumkóða
Google-próf
eða
leitarvélapróf
er einfalt próf til þess að kanna hvort að efni sé
markvert
en það er varhugavert að reiða sig alfarið á slíkar niðurstöður. Fjölmörg efni kunna að vera markverð þó að lítið sé um þau ritað á netinu. Sérstaklega á það við heimildir á íslensku sem eru ekki endilega mjög aðgengilegar á netinu.
Grein
breyta frumkóða
Greinar
eru færslur eða uppflettiorð í alfræðiritinu. Þær eru síður í
aðalnafnrýminu
, sem eru ekki tilvísanir og innihalda strenginn „[[“.
Grein mánaðarins
breyta frumkóða
Grein mánaðarins
er stutt textabrot á forsíðunni sem er uppfært í upphafi hvers mánaðar með útdrætti úr valdri grein, gjarnan
úrvalsgrein
með mynd.
Greinamerking
Gæðagrein
breyta frumkóða
Gæðagrein
er vönduð grein sem gerir efni sínu góð skil. Sjá
Wikipedia:Gæðagrein
breyta frumkóða
Hégómagrein
breyta frumkóða
Hégómagrein
eða
auglýsing
sem grein sem einhver sem líklega er tengdur viðfangsefninu setur inn. Höfundar Wikipediu ættu ekki að skrifa greinar um sjálfa sig, fyrirtækið sitt, eða verk sín. Í því felst hagmunaárekstur. Hégómagreinar eru gjarnan um
ómarkverð
viðfangsefni og
hlutleysi
þeirra er yfirleitt ábótavant þannig að oft er þeim
eytt
Hjálp
breyta frumkóða
Hjálp
er eitt af
nafnarýmum
Wikipediu og inniheldur siður sem ætlaðar eru til aðstoðar og leiðbeininga fyrir notendur. Sjá einnig:
Hjálp:Efnisyfirlit
Hlutleysi
breyta frumkóða
Krafan um
hlutlaust sjónarhorn
í greinum Wikipediu er óumsemjanleg grundvallarkrafa sem alfræðiritið byggir á. Kynna ber ólík sjónarmið án þess að draga taum nokkurs þeirra sérstaklega. Sjá einnig:
Wikipedia:Hlutleysisreglan
Hreingerning
breyta frumkóða
Hreingerning
er viðgerð á grein, sem miðar að því að leiðrétta stafsetningar- og innsláttarvillur, bæta málfar og frágang, tenglaprýða o.s.frv. þannig að greinin falli vel að stöðlum Wikipediu. Hreingerning krefst einungis ritstjórnarhæfileika en ekki sérfræðiþekkingar á efni greinar, sem gæti þurft til þess að laga innihald hennar. Sjá einnig:
Wikipedia:Viðhald
breyta frumkóða
Inngangur
breyta frumkóða
Inngangur
í góðri grein á að draga saman fremst í greininni helstu atriði hennar í örfáum málsgreinum.
Interwiki
breyta frumkóða
Interwiki
er leið til að tengjast greinum á öðrum tungumálum á sama efni. Það er gert með því að skrifa t.d.
[[en: Mars (Planet)]]
neðst í grein til að tengja við grein á ensku um plánetuna
Mars
. Þessir tenglar koma fram vinstra megin á þeim síðum sem innihalda Interwiki-tengla. Athugið að Interwiki-tenglar eru settir neðst í hverja grein.
breyta frumkóða
Jimbo
breyta frumkóða
Jimbo
er gælunafn og notandanafn
Jimmy Wales
sem er stofandi Wikipediu og Wikimedia-stofnunarinnar.
breyta frumkóða
Kerfissíða
breyta frumkóða
Kerfissíður
eru sjálfvirkt uppfærðar síður sem sýna ýmsa gagnlega tölfræði um verkefnið. Sjá
yfirlitið yfir kerfissíður
Kurteisi
breyta frumkóða
Kurteisi
í samskiptum notenda er afar mikilvæg og grunnforsenda fyrir því að jafn viðamikið verk og Wikipedia geti gengið fyrir sig stóráfallalaust. Sjá einnig:
Wikipedia:Framkoma á Wikipediu
breyta frumkóða
breyta frumkóða
(lítið „M“) í breytingaskrám og nýlegum breytingum stendur fyrir „minniháttar breytingu“. Það er hak sem gott er að nota þegar gerðar eru smávægilegar breytingar á borð við leiðréttingu stafsetningarvilla og þess háttar.
Markvert efni
breyta frumkóða
Markvert efni
er hvert það viðfangsefni sem er nægjanlega þekkt til þess að viðeigandi er að skrifa grein um það í alfræðiriti. Hvar þau mörk liggja nákvæmlega er háð skilningi samfélagsins á hverjum tíma þannig að slík viðmið taka breytingum. Sjá einnig:
Wikipedia:Markvert efni
MediaWiki
breyta frumkóða
MediaWiki
er hugbúnaðurinn sem Wikipedia og önnur Wikimedia-verkefni keyra á. MediaWiki er
frjáls hugbúnaður
Melding
breyta frumkóða
Meldingar
eru textastrengir sem notendaviðmót MediaWiki-vefja (þ.á.m. Wikipediu) byggist á. Þeim má breyta, t.d. þegar hugbúnaðurinn er þýddur á nýtt tungumál. Sjá lista yfir
allar meldingar
Myndir
breyta frumkóða
Almennilegar alfræðigreinar eru
myndskreyttar
. Wikipedia hefur aðgang að gríðarstórum myndabanka
Wikimedia Commons
sem nota má að vild. Myndir er kallaðar fram með
[[Mynd:dæmi.jpg]]
en fleiri breytur ráða útliti þeirra á síðum.
Möppudýr
breyta frumkóða
Möppudýr
eru notendur sem hafa aðgang að nokkrum tæknilegum valmöguleikum umfram aðra notendur. Þeir geta m.a. eytt myndum og greinum, verndað greinar, bannað aðra notendur, breytt notandanöfnum og gert aðra notendur að möppudýrum. Sjá einnig:
Möppudýr
breyta frumkóða
breyta frumkóða
(stórt N) í nýlegum breytingum stendur fyrir nýja síðu. Fylgjast má með nýstofnuðum greinum á viðeigandi
kerfissíðu
Nafnarými
breyta frumkóða
Nafnarými
eru flokkar sem allar síður Wikipediu falla undir. Aðalnafnrýmið er frátekið undir
greinar
en önnur nafnrými eru til dæmis notendasíður eða spjallsíður. Nafnrýmið þekkist á forskeytinu við titil síðunnar, þessi síða tilheyrir t.d.
Wikipedia:
nafnrýminu en það er notað til að halda utan um allskyns upplýsingar varðandi verkefnið. Greinar hafa ekkert slíkt forskeyti. Sjá einnig
Wikipedia:Nafnarými
Notandi
breyta frumkóða
Notandi
Wikipediu er sá sem les vefinn eða breytir honum. Í þrengri merkingu tekur orðið gjarnan bara yfir þá sem breyta vefnum. Sjá einnig:
Wikipedia:Notendur
Notandasíða
breyta frumkóða
Notandasíða
er síða í notandanafnarýminu sem skráðir notendur Wikipediu geta notað til kynningar á sjálfum sér, til að efla samvinnu við aðra notendur eða til að halda utan um verk sín.
Notandanafn
breyta frumkóða
Notandanöfn
skráðra notenda Wikipediu aðgreina þá í sundur. Ekki gerð krafa um að höfundar Wikipediu skrifi undir fullu nafni og það er undir hverjum og einum komið hvort að rétt nafn er gefið upp eða ekki. Nokkrar reglur gilda um val notendanafna sem sjá má
hér
breyta frumkóða
Óalfræðilegt
breyta frumkóða
Óalfræðilegt
efni er það sem ekki á heima á Wikipediu af ýmsum ástæðum. Wikipedia er ekki orðabók og ekki galopinn sarpur upplýsinga. Af slíku efni getur sumt átt heima á systurverkefnum Wikipediu — t.d. orðabókaskilgreiningar á Wiktionary eða frumtextar á Wikisource — eða á öðrum frjálsum samvinnuverkefnum á borð við
Openstreetmap
. Sjá einnig:
Wikipedia:Það sem Wikipedia er ekki
Ófrjálst efni
breyta frumkóða
Ófrjálst efni
er það sem ekki fellur undir frjáls afnotaleyfi. Það má aðeins nota á íslensku Wikipediu með takmörkunum. Samkvæmt höfundalögum er stuttar tilvitnanir í höfundaréttarvarinn texta heimilar að því gefnu að höfundar sé getið. Um margmiðlunarefni gilda
sérstök viðmið
breyta frumkóða
Potturinn
breyta frumkóða
Potturinn
er almenn umræðusíða íslensku Wikipediu. Sjá
Pottinn
breyta frumkóða
Sandkassi
breyta frumkóða
Sandkassi
er síða sem notendur geta breytt í tilraunaskyni til þess að læra á Wikimálið.
Sannreynanleiki
breyta frumkóða
Sannreynanleikareglan
er sú meginregla um efnistök Wikipediu að allt efni á henni skuli vera hægt að sannreyna í áreiðanlegum heimildum. Af reglunni um sannreynanleiki leiðir sú krafa að
vísa til heimilda
fyrir fullyrðingum nema um augljós og alþekkt sannindi sé að ræða sem auðveldlega má sannreyna. Sjá einnig:
Wikipedia:Sannreynanleiki
Samþykkt
breyta frumkóða
Samþykkt
er regla sem Wikipediusamfélagið fylgir og er talin nauðsynleg til þess að Wikipedia nái markmiðum sínum. Sjá einnig:
Wikipedia:Samþykktir og stefnur
Samfélagsgátt
breyta frumkóða
Samfélagsgáttin
er síða sem veita á yfirlit yfir það efni á vefnum sem ekki telst til alfræðiritsins heldur snýr að rekstri og uppbyggingu vefsins og samfélags notendanna. Sjá:
Wikipedia:Samfélagsgátt
Samvinna mánaðarins
breyta frumkóða
Samvinna mánaðarins
er samvinnuverkefni notenda á íslensku Wikipediu um að taka fyrir tiltekið efnissvið í hverjum mánuði til þess að bæta umfjöllun um það. Sjá:
Wikipedia:Samvinna mánaðarins
Síða
breyta frumkóða
Síður
eru einstakar færslur á Wikivefnum, þær geta verið greinar, spjall, flokkar, kerfissíður o.s.frv.
Skjalasafn
breyta frumkóða
Snið
breyta frumkóða
Snið
eru síður í sniðanafnrýminu sem hægt er að fella inn í aðrar síður með því að gera
{{nafn sniðs}}
. Þau eru hentug til að búa til stöðluð skilaboð til að birta á mörgum síðum eða staðlaðar upplýsingatöflur. Sjá einnig
hjálparsíðuna fyrir snið
Spjall
breyta frumkóða
Spjallsíður
fylgja flestum síðum á Wikipediu, þær eru ætlaðar til umræðu um viðkomandi síðu. Sjá einnig:
Hjálp:Spjallsíður
Stjórnandi
breyta frumkóða
Stjórnandi
er gamalt heiti yfir þann hóp notenda sem hafði aðgang að nokkrum valmöguleikum umfram venjulega notendur. Í ágúst 2007 var ákveðið að veita öllum stjórnendum svokölluð möppudýrsréttindi að auki og var nafnið stjórnandi fellt niður um leið. Sjá einnig:
Möppudýr
Stubbur
breyta frumkóða
Stubbur
er stutt grein sem engan veginn nær að gera viðfangsefni sínu full skil. Stubbarnir eru merktir með
{{stubbur}}
í breytingarglugganum. Lista yfir alla merkta stubba er að finna í flokknum
Stubbar
breyta frumkóða
Taxobox
breyta frumkóða
Taxobox
er upplýsingatafla á greinum um lífverur sem inniheldur flokkunarfræðilegar upplýsingar um lífveruna.
Tengill
breyta frumkóða

tenglaprýða
er það sama og „wikify“ á
ensku
og felur í sér að tengja greinar Wikipedia innbyrðis. Sjá
Hjálp:Handbók#Tenglar
fyrir leiðbeiningar um hvernig hægt er að búa til tengla.
Tilvísun
breyta frumkóða
Tilvísun
er það sama og „
Redirect
“ á ensku. Þeim er ætlað að leiða lesandann á rétta grein þó að hann noti ekki nákvæmt nafn hennar í leitinni. Tilvísun er sett inn í grein á með því að gera:
#tilvísun [[Grein sem vísa skal í]]
. Dæmi um þetta er
Seinni heimsstyrjöldin
sem leiðir lesandann á
Síðari heimsstyrjöldin
Tímabundinn aðgangur
breyta frumkóða
Tímabundinn aðgangur
er óinnskráður notandi. Frá og með ágúst 2025 eru óinnskráðir notendur kallaðir tímabundnir aðgangar. Þetta eru notendanöfn sem eru í notkun í allt að 30 daga. Notendanafn sem hefur verið notað er ekki notað aftur. Tímabundnir aðgangar eru sjálfvirkt skráðir inn við fyrstu breytingu og halda aðgangi sínum þangað til hann rennur út. Aðgangurinn er tengdur tölvunni sem þeir nota, svo þeir halda sama notendanafni þó vistfangið breytist. Fyrir tilkomu tímabundra aðganga voru óinnskráðir notendur vistföng eða IP-tölur, sem eru heimilisföng á netinu.
breyta frumkóða
Úrvalsgrein
breyta frumkóða
Úrvalsgrein
er grein sem er á allan hátt til fyrirmyndar, vel skrifuð og hnitmiðuð en gerir efni sínu fullnægjandi skil. Sjá einnig
Úrvalsgrein
breyta frumkóða
Vaktlisti
breyta frumkóða
Vaktlistinn
er listi sem hver skráður notandi getur búið til fyrir sig með síðum sem viðkomandi hefur sérstakan áhuga á að fylgjast með. Sjá:
Hjálp:Að vakta síður
Vélmenni
breyta frumkóða
Vélmenni
er skráð notandanafn á Wikipediu sem keyrir sjálfvirk eða hálfsjálfvirk forrit sem notuð eru í ýmis endurtektarsöm og einhæf viðhaldsverkefni sem mannlegum notendum leiðist. Sjá:
Wikipedia:Vélmenni
Viðhald
breyta frumkóða
Viðhald
snýst um að bæta úr ágöllum á greinum á Wikipediu, hvort sem það er heimildaskortur, vont málfar eða skortur á hlutleysi. Greinar sem eiga við slík vandamál að stríða eru merktar með sérstökum sniðum og falla í
viðhaldsflokka
. Sjá einnig:
Wikipedia:Viðhald
breyta frumkóða
Wiki
breyta frumkóða
Wiki
er vefsíða sem notendur geta breytt með beinum hætti. Wiki-vefir eru notaðir af samvinnuverkefnum á borð við Wikipediu.
Wikidata
breyta frumkóða
Wikidata
er systurverkefni Wikipediu og frjáls gagnagrunnur fyrir tölfræðigögn, tungumálatengla og annað sem m.a. er hægt að vísa til af hinum ýmsu tungumálaútgáfum Wikipediu.
Wikimedia
breyta frumkóða
Wikimedia Foundation
eru samtök sem að halda utan um Wikipediu og systurverkefni hennar og reka vélbúnaðinn sem til þarf.
Wikibooks
breyta frumkóða
Wikibooks
eða „
Wikibækur
“ er systurverkefni Wikipediu sem hefur að markmiði að búa til frjálst kennsluefni og leiðbeiningar. Sjá
Wikibooks á íslensku.
Wikisource
breyta frumkóða
Wikisource
eða „
Wikiheimild
“ er systurverkefni Wikipediu sem safnar saman frumtextum sem ekki eru háðir höfundarétti. Sjá
Wikisource á íslensku.
Wiktionary
breyta frumkóða
Wiktionary
eða „
Wikiorðabók
“ er systurverkefni Wikipediu sem gengur út á að búa til frjálsa orðabók. Sjá
Wiktionary á íslensku.
Wikiquote
breyta frumkóða
Wikiquote
er systurverkefni Wikipediu þar sem safnað er saman tilvitnunum. Sjá
Wikiquote á íslensku.
Efnisyfirlit
0–9
Efst
Wikipedia samfélagið
Potturinn
Samfélagsgátt
Gátlistinn
Handbókin
Reglur:
Hlutleysisreglan
Sannreynanleikareglan
Engar frumrannsóknir
Æviágrip lifandi fólks
Máttarstólpar Wikipedia
Markvert efni
Önnur stefnumál:
Nafnavenjur
Flokkakerfið
Viðhald
Deilumál
Framkoma á Wikipediu
Notendur:
Möppudýr
Vélmenni
Hver erum við?
Notendur eftir breytingafjölda
Notendakassar
Annað:
Samvinna mánaðarins
Tillögur að úrvalsgreinum
Tillögur að gæðagreinum
Merkisáfangar
Hugtakaskrá
Sótt frá „
Flokkur
Wikipedia:Hugtakaskýringar
Wikipedia
Hugtakaskrá
Bæta við umræðu